Fréttir

Takmarkað aðgengi að P2 bílastæðum á KEF á mánudaginn vegna malbikunar
Laugardagur 30. maí 2026 kl. 12:15

Takmarkað aðgengi að P2 bílastæðum á KEF á mánudaginn vegna malbikunar

Takmarkaður aðgangur verður að P2 bílastæðunum komu megin við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli mánudaginn 1.júní næstkomandi vegna malbikunarframkvæmda. Verkefninu er skipt í tvo fasa.
Bílastæði fyrir komufarþega verður minnkað meðan á framkvæmdum stendur. Fyrir hádegi er vestari hluti stæðisins malbikaður og því er aðgengi að bílastæðum á austari hluta.  Gangandi farþegum verður stýrt yfir á göngustíg á efra svæði P2 (græn ör), sjá mynd.
Eftir hádegi verða græni og guli hlutinn malbikaðir.
Vegatálmar verða settir upp til að afmarka vinnusvæði þar sem framkvæmdir standa yfir. Umferð gangandi og akandi fólks verður stýrt á P2 á meðan á malbikun stendur. Áætlað er að mála og merkja bílastæðið síðar í sumar. Bent er á að hægt er að nota P1 bílastæðið brottfarar megin við flugstöðina gjaldfrjáls í 15 mínútur innan sólahrings til að sækja farþega gerist þess þörf.
Fjölmörg framkvæmdaverkefni eru í vinnslu á flugstöðvarsvæðinu auk þess sem mörgum þeirra er lokið.  Hér má finna yfirlit yfir þau verkefni sem eru og hafa verið í gangi. Framkvæmdirnar eru liður í að bæta innviði og þjónustu í og við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Aðstaðan hefur tekið miklum breytingum vegna framkvæmda síðustu missera, m.a. í tengslum við byggingu austurálmu flugstöðvarinnar. Þessa dagana standa yfir framkvæmdir vegna breytinga á komusalnum í flugstöðinni. Þær framkvæmdir þrengja tollaganginn frá töskusal tímabundið. Nánari upplýsingar um þær framkvæmdir má finna hér.
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar