Pistlar

Af strandveiði, rækju og sumri og sól
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 29. maí 2026 kl. 15:51

Af strandveiði, rækju og sumri og sól

Getum við sagt að núna sé komið sumar? Já, allavega hefur sólin skinið núna síðustu daga og síðasta vika var góð, í það minnsta það góð að strandveiðibátarnir náðu að róa flestalla þá daga sem þeir máttu róa.

Byrjum samt á rækjunni, því að núna hefur Nesfiskur sent tvo togara á rækjuveiðar. Sóley Sigurjóns GK er búin að vera á rækjuveiðum fyrir norðan síðan snemma í apríl og hefur landað á Siglufirði. Núna er Pálína Þórunn GK líka komin á rækjuveiðar og hefur togarinn verið við veiðar út frá Snæfellsnesinu, og hefur þá landað í Grundarfirði. Hefur Pálína Þórunn GK landað alls 38 tonnum af rækju í tveimur löndunum og 8 tonnum af fiski.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Rækjunni af Pálínu, eins og af Sóleyju, er ekið til Hvammstanga til vinnslu hjá Meleyri og bolfiskum að mestu er ekið til Sandgerðis og Garðs til vinnslu þar.

Það verður ansi fróðlegt að sjá þessa viku því að þessi vika er síðasta vikan sem strandveiðibátarnir mega veiða og þeir geta aðeins farið í þrjá róðra ef veður leyfir því að það má ekki róa á föstudögum. Og spurning hvort einhver bátanna héðan náði í 10 tonna afla.

Eins og staðan er núna í Grindavík er Ólafur GK hæstur með 7,73 tonn í 10 róðrum og Grindjáni GK þar á eftir með 6,99 tonn í 9 róðrum, Hrappur GK með 6,6 tonn í 9 og Hafdalur GK með 6,2 tonn í 10, en hann er reyndar á Hornafirði núna.

Í Keflavík er Ósk KE með 5,96 tonn í 8 róðrum.

Í Sandgerði er Hawkerinn GK hæstur með 7,8 tonn í 9 róðrum, Séra Árni GK með 7,35 tonn í 9, Sella GK 7,1 tonn í 8, Dímon GK 6,75 tonn í 9, Sigurörn GK með 6,61 tonn í 9, Hólmsteinn GK 6,07 tonn í 8 og Una KE með 5,8 tonn í 8.

Þetta eru þrír dagar og það er jafnvel möguleiki á að allir þessir bátar að ofan nái í 10 tonna afla í maí. Þurfa að ná yfir eitt tonn alla þessa þrjá daga.

Annars hefur dragnótaveiðin núna í maí verið ansi góð. Sigurfari GK heldur uppteknum hætti og fer austur undir Suðurströndina frá Vík í Mýrdal og áleiðis austur að Gígjukvísl, og hefur landað núna í maí 215 tonnum í 7 róðrum og mest 58 tonnum í einni löndun. Þessi 58 tonna löndun er næststærsta einstaka löndun dragnótabáts í maí, aðeins Hildur SH frá Rifi hefur komið með stærri löndun, en Hildur SH kom með 63 tonn í einni löndun.

Siggi Bjarna GK með 127 tonn í 9. Benni Sæm GK 118 tonn í 13. Aðalbjörgu RE gengur ansi vel og hefur landað 194 tonnum í 13 róðrum. Maggý VE kom frá Vestmannaeyjum og hefur landað 72 tonnum í 8 róðrum og mest 18,5 tonnum, mjög blandaður afli hjá Maggý VE, en þó mest af kola. Margrét GK með 37,8 tonn í 4 róðrum í Grindavík, kom síðan til Sandgerðis og hefur landað þar 14,5 tonnum í 2 róðrum, eins og hjá Maggý VE þá er Margrét GK að eltast við kolann.

Núna eru kosningar afstaðnar og ég ákvað ekki að impra neitt á því en mig langar samt að pæla doldið því núna þá hefur Magnús Stefánsson sem er bæjarstjóri í Suðurnesjabæ ákveðið að hætta og mun hann hætta núna 1. júní. Magnús er ekki bara bæjarstjóri heldur er hann líka hafnarstjóri í Sandgerðishöfn. Það verður fróðlegt að sjá hvort nýr meirihluti í bæjarstjórn í Suðurnesjabæ, þegar þeir munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra, hvort sá aðili verði líka hafnarstjóri í Sandgerðishöfn. Það er nefnilega nokkuð spes að í þessum þremur höfnum sem eru á Suðurnesjunum, Grindavík, Reykjaneshöfn og Sandgerðishöfn, að Sandgerðishöfn, þrátt fyrir stærð sína, er eina höfnin á Suðurnesjunum sem ekki er með sinn eigin hafnarstjóra. Í Reykjaneshöfn er Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri og í Grindavík er Sigurður Arnar Kristmundsson hafnarstjóri.

Vonandi verða ráðnir tveir nýir stjórar í Suðurnesjabæ, bæjarstjóri og hafnarstjóri.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar