Pistlar

Búið að tryggja 13.500 tonna þorskkvóta í strandveiðipottinn
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 15. maí 2026 kl. 05:27

Búið að tryggja 13.500 tonna þorskkvóta í strandveiðipottinn

Þá er maímánuður kominn í gang og eins og svo ansi oft áður þá spilar veður ansi stórt hlutverk í sjósókn núna í byrjun.

Strandveiðitímabilið árið 2026 hófst núna 4. maí og veður spilaði ansi mikla rullu í sjósókn bátanna fyrstu vikuna. Það mátti róa í fjóra daga, en það voru mjög fáir bátar sem náðu að róa alla þessa fjóra daga út af veðri, og þegar þessi pistill er skrifaður þá er haugabræla og mjög fáir bátar, eða rétt um 9 bátar, voru á sjó.

Aðalbros
Aðalbros

Þetta strandveiðitímabil verður líklega mun lengra og jafnvel lengsta strandveiðitímabil í þó nokkur ár, því að núna er búið að tryggja 13.500 tonna þorskkvóta í strandveiðipottinn.  Og veðurfarið fyrstu vikuna sem og í dag, þegar þessi pistill er skrifaður, er nú þannig að lítið hefur veiðst úr þessum potti.

Annars þá er þessi pistill skrifaður á degi sem er varla til í dagatölum í dag, 11. maí.  Þessi dagur er lokadagurinn, eða lokadagur vertíðar.  Á árunum sirka frá 1940 og vel fram yfir aldamótin 2000 var oft slagur alveg fram að þessum degi, 11. maí, um hvaða bátur og áhöfn yrði aflahæstur í höfn, eða þá yfir landið.

Þessi slagur er svo til horfinn í dag, en það er nú samt sem áður þannig að skipstjórar og áhafnir báta og togara fylgjast hvor með öðrum og vilja vera hærri en báturinn eða togarinn í sömu verstöð eða yfir landið.

Fyrir utan þetta hundleiðinlega veður sem byrjar í maí og þá sérstaklega gagnvart strandveiðisjómönnum þá er veiðin hjá öðrum bátum búin að vera mjög góð. 

Í Grindavík er búið að vera töluvert um togaralandanir. En þar hafa til dæmis.  Birtingur NK komið með 138 tonn.  Hulda Björnsdóttir GK með 178 tonn og Vörður ÞH með 109 tonn, allir eftir eina löndun.  Bergey VE með 172 tonn, og Vestmannaey VE 185 tonn, báðir eftir þrjár landanir.

Margrét GK sem lá í Sandgerði í allan vetur út af breytingum er með 30 tonn í 3 á dragnót í Grindavík.  Hjá Línubátunum þá er Sighvatur GK með 96 tonn í 1.  Gísli Súrsson GK 37 tonn í 3 og Fjölnir GK 114 tonn í 8 róðrum. 

Í Keflavík og Njarðvík eru það að langmestu leyti netabátarnir sem hafa landað þar, Erling KE er með 35 tonn í 2 og Grímsi GK 30 tonn í 8, báðir að landa í Njarðvík.  Halldór afi GK 15 tonn í 6.  Emma Rós KE 13 tonn í 6.  Addi afi GK 11 tonn í 6.  Sunna Líf GK 10 tonn í 6, allir að landa í Keflavík.

Svala Dís KE sem er búinn að vera að landa í Keflavík í allan vetur er komin til Sandgerðis en hún er annar af tveimur bátum sem eru á grásleppu á Suðurnesjum og báðir í Sandgerði.  Svala Dís KE er komin með 1,4 tonn í tveimur róðrum af grásleppu.  Guðrún GK er með 8,8 tonn í fjórum róðrum og af þeim afla er grásleppa 7,1 tonn. Báðir bátarnir eru að veiða grásleppukvóta sem þeir fengu úthlutað og er Guðrún GK svo til að vera búin með sinn kvóta, en Svala Dís KE á eftir um 14 tonn af grásleppu.  Svo er aldrei að vita nema Sævar og Siggi, eigendur af bátunum, bæti við sig grásleppukvóta með leigu.  Reyndar á næsta ári þá verður enginn kvóti, bara dagar eins og var áður á grásleppunni.

Annars er mjög mikill fjöldi af færabátum sem eru að landa í Sandgerði, en í fyrstu vikunni á strandveiðum voru 35 færabátar að landa, en ekki eru allir bátar á strandveiðum, t.d. er Dóra Sæm HF á færum á sínum kvóta og rær þá daga sem strandveiðibátarnir mega ekki veiða, t.d. föstudaga og um helgar, hefur Dóra Sæm HF landað tæpum 3 tonnum í 3 róðrum. 

Margrét GK hefur veitt vel á línunni frá Sandgerði og með 45 tonn í 4 róðrum og mest 17,5 tonn í einni löndun.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar