Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn

Pistlar

Fiskurinn kominn úr fæðingarorlofi og 800 skráðir á strandveiðar
Þriðjudagur 5. maí 2026 kl. 10:14

Fiskurinn kominn úr fæðingarorlofi og 800 skráðir á strandveiðar

Þá er hrygningarstoppinu lokið og heldur betur hefur veiðin gengið vel hjá bátunum. Því strax eftir að hólfin næst landi voru opnuð kl. 10:00 á mánudaginn síðasta hafa línubátarnir frá Sandgerði heldur betur mokveitt og komið með vel yfir 20 tonn í land og það eftir eina lögn.

Sem dæmi má nefna að Kristján HF er kominn með tæp 65 tonn í 3 róðrum eftir stoppið og mest um 26 tonn í einni löndun.  Indriði Kristins BA með um 85 tonn í 4 róðrum og mest um 27 tonn í róðri, og báðir þessir bátar með þennan afla eftir aðeins eina löndun.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Særif SH er með 76 tonn í 4 róðrum og þar af 11 tonnum landað í Grindavík og restinni landað í Sandgerði.  Margrét GK með um 80 tonn í 5 róðrum og mest 21 tonn í einni löndun, en Margrét GK er nokkuð minni bátur en hinir sem á undan eru nefndir, og 21 tonn er fullfermi hjá Margréti GK.

Óli á Stað GK var líka að mokveiða og var með 65 tonn í aðeins 3 róðrum og mest um 25 tonn í róðri.  Allir þessir bátar voru að landa í Sandgerði.

Veiðin hjá bátunum sem lönduðu í Grindavík var nokkuð minni en hjá bátunum í Sandgerði og þar er til dæmis Gísli Súrsson GK með 64 tonn í 4 róðrum og mest 15,5 tonn.  Vésteinn GK með 38 tonn í 3 róðrum.  Dúddi Gísla GK með 29 tonn í 3 róðrum.

Þegar þessi pistill er skrifaður er stutt eftir af aprílmánuði og þó svo að hrygningarstoppið hafi komið inn í, og þá stefnir í að mánuðurinn verði nokkuð góður aftur eftir mjög svo slæman marsmánuð.

Þar sem að aprílmánuður er að verða búinn er mjög stutt í að maí byrji og þá hefst strandveiðitímabilið á þessu ári.  Vegna þess að reglur um strandveiði eru þannig að það má ekki róa um helgar og ekki á föstudögum mega því bátarnir ekki hefja veiðar fyrr en eftir helgina, sem er 4. maí.

Yfir 800 bátar hafa fengið strandveiðileyfi og flestir bátanna eru á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi og yfir til Vestfjarða, eða nánar tiltekið að bátar sem landa á Arnarstapa og yfir til Súðavíkur eru á svæði A.

Suðurnesin eru aftur á móti á svæði D, sem er nokkuð langt, en það nær frá Akranesi og austur um til Hornafjarðar. 

Undanfarin ár hefur ein höfn á þessu svæði verið langstærsta strandveiðihöfnin á þessu svæði og stærsta eða næststærsta strandveiðihöfnin á Íslandi, og er það Sandgerði.  Í fyrra var til dæmis Sandgerði stærsta strandveiðihöfnin rétt á undan Patreksfirði, og er ég þá að miða við hversu margir bátar landa í höfninni.

Reyndar er munur á milli þessara svæða A og D nokkuð áberandi mikill, því að á svæði A er að langmestu leyti þorskur sem strandveiðibátarnir veiða, en á svæði D er töluvert mikið um ufsa í aflanum hjá bátunum og var þá helst um ufsa hjá bátunum sem réru frá Hornafirði, Sandgerði og Grindavík.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar