Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Pistlar

Gular og rauðar viðvaranir
Miðvikudagur 15. apríl 2026 kl. 11:19

Gular og rauðar viðvaranir

Það fór víst ekki fram hjá neinum að nýliðnir páskar á Íslandi einkenndust af alls konar gulum og rauðum viðvörunum með tilheyrandi veseni af öllu tagi. Hér í París var ástandið þó nokkuð betra og eina gula viðvörunin sem talandi var um á okkar heimili var þegar ég og ömmu-stelpan, sem var hjá okkur í heimsókn yfir páskana ásamt fjölskyldunni, fórum báðar í skærgula skvísukjóla á páskadag!

Og það var einmitt ein af þessum viðvörunum sem varð til þess að við fengum að njóta samvista þeirra einum degi lengur, þar sem fluginu þeirra var aflýst í þann mund sem þau settust upp í leigubílinn til að fara á flugvöllinn. En það varð líka til þess að þau náðu aukadegi með þeirri gulu hér í París, þar sem sólin skein skært á okkur alla páskana.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í gær var svo búist við rauðri viðvörun í hverfinu okkar þar sem PSG tók á móti Liverpool í Meistaradeild Evrópu og borgin var full af fótboltabullum af öllu tagi. Við Lubbi vorum í kvöldgöngunni okkar einmitt þegar fólk streymdi á leikinn en það var nú öðru nær og viðvörunin var alblá. Þrátt fyrir langan göngutúr og mikla leit tókst okkur ekki að koma auga á einn einasta rauðklæddan Púlara í allri fólksmergðinni í kringum völlinn. Það vantaði hins vegar ekkert upp á fulltrúa PSG – þeir bláklæddu voru alls staðar, sungu og trölluðu á leið sinni á völlinn. Svo fóru leikar þannig að þeir bláu unnu glæsilegan sigur á þeim rauðu og höfðu ríka ástæðu til að halda söngnum áfram eftir leikinn.

Af einhverri ástæðu varð mér hugsað til komandi kosninga – blátt vs. rautt. Ég segi bara áfram PSG!