KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Pistlar

Veðurguðirnir hafa sett stórt strik í mars
Föstudagur 27. mars 2026 kl. 06:54

Veðurguðirnir hafa sett stórt strik í mars

Það er langt liðið á þennan blessaða marsmánuð sem samkvæmt öllu hefði átt að vera langstærsti aflamánuður ársins hérna á Suðurnesjunum.

Veðurguðirnir hafa heldur betur sett stórt strik í þann reikning því að tíðarfarið er búið að vera vægast sagt alveg afleitt. Endalausar brælur og bátar hafa lítið komist á sjóinn. Reyndar þegar þessi pistill er skrifaður þá eru nokkrir bátar á sjó en enginn færabátur.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Lítum aðeins á hvernig er búið að ganga þrátt fyrir afleitt tíðarfar. Hjá dragnótabátunum eru Aðalbjörg RE og Sigurfari GK svo til með sama afla. Sigurfari GK er með 183,7 tonn í níu róðrum og mest 33 tonn og Aðalbjörg RE er með 183,77 í tíu róðrum; það munar aðeins 70 kílóum á þeim tveim.

Siggi Bjarna GK er með 112 tonn í sex róðrum og mest 24,5 tonn. Benni Sæm GK 88 tonn í sex og mest 23 tonn. Allir þessir bátar eru á sjó þegar þessi pistill er skrifaður og verður fróðlegt að sjá hvort að bæði Aðalbjörg RE og Sigurfari GK fari báðir yfir 200 tonnin núna í mars eftir daginn í dag sem þessi pistill er skrifaður.

Hjá netabátunum sem að mestu hafa verið með netin inn í Faxaflóa og við Garðskagavita er Erling KE með ansi góðan afla það sem af er mars, kominn með 284 tonn í fimmtán róðrum og mest 45 tonn. Friðrik Sigurðsson ÁR er með 112 tonn í sextán róðrum og mest 17 tonn.

Af minni netabátunum þá hafa þeir ekki náð að róa eins mikið og þessir tveir stóru bátarnir, er Halldór Afi KE með 25 tonn í tólf. Svala Dís KE 17 tonn í ellefu. Addi Afi GK 26 tonn í ellefu, Sunna Líf GK 23 tonn í tóu og Emma Rós KE 11 tonn í sex.

Línubátarnir hafa komist í mjög fáa róðra en veiðin hjá þeim var góð í byrjun mars.

Lítum á nokkra. Stakkur GK er kominn með 16 tonn í sjö róðrum en hann rær með balalínu. Fjölnir GK 53 tonn í sex róðrum. Guðbjörg GK 35 tonn í fjórum. Dúddi Gísla GK 40 tonn í sex. Allir þessir bátar eru að landa í Grindavík og það segir ansi mikið um þessa löngu brælutíð að bátarnir hafa rétt svo náð að komast í fjóra til sex róðra þegar 24 dagar eru liðnir af mars.

Margrét GK 63 tonn í 6, Geirfugl GK 20 tonn í fjórum, Hemmi á Stað GK 9 tonn í tveimur, allir í Sandgerði. Tryggvi Eðvarðs SH var með 10 tonn í tveimur í Grindavík og kom síðan til Sandgerðis og var þar með 7,7 tonn í einni löndun. Tryggvi er á sjó þegar þessi pistill er skrifaður frá Sandgerði.

Indriði Kristins BA kom til Sandgerðis með 11 tonn og daginn eftir til Grindavíkur með 7 tonn. Gísli Súrsson GK landaði 26 tonnum í þremur róðrum í Sandgerði og 54 tonnum í sjö róðrum í Grindavík.

Óli á Stað GK var með 18 tonn í tveimur róðrum í Sandgerði og 55 tonn í fimm róðrum í Grindavík.

Það eru ekki margir dagar eftir af þessum blessaða marsmánuði og veðrið næstu daga, þangað til út mánuðinn, er nú ekki gæfulegt en vonandi verður mokveiði þessa fáu daga sem gefur á sjóinn það sem eftir er af mars.