Vindar blása úr öllum áttum í besta aflamánuði ársins
Vindar blása úr öllum áttum í besta aflamánuði ársins
Í síðasta pistli endaði ég á að svona hálfpartinn ræða hvað væri fram undan með því að segja að fram undan væri einn stærsti aflamánuður hvers árs. Mars.
Jú, jú, marsmánuður fór af stað og hann byrjaði vel. Veður var gott strax 1. mars en síðan ákváðu veðurguðirnir að þar sem við vorum búin að fá svo auðveldan vetur eins og til dæmis janúar að þá yrði nú breyting á og núna þegar þessi pistill er skrifaður er svo til búin að vera bræla í rúma heila viku og bátar lítið getað komist á sjóinn.
Það eru helst stóru netabátarnir tveir í Njarðvík, Erling KE og Friðrik Sigurðsson ÁR, sem eitthvað hafa náð að fara út og dragnótabátarnir Sigurfari GK og Aðalbjörg RE frá Sandgerði, en þeir eru reyndar á sjó þennan dag sem þessi pistill er skrifaður.
Og það verður að segja eins og er að tíðin næstu daga lítur ekkert of vel út, það verður vindur eiginlega úr öllum áttum og kannski smá glufur inn á milli, þó svo að laugardagurinn líti ágætlega út.
Allavega, lítum á nokkrar aflatölur þessa örfáu daga sem hefur gefið á sjóinn.
Í Grindavík er Dúddi Gísla GK með 5,7 tonn í einni löndun. Stakkur GK 4 tonn í 2 á balalínu. Agla ÍS 2,4 tonn í 2 á færum, Hulda Björnsdóttir GK 175 tonn í einni löndun.
Í Njarðvík og Keflavík eru einungis netabátarnir og er Erling KE með 34 tonn í 5 róðrum. Friðrik Sigurðsson ÁR 29 tonn, líka í fimm róðrum. Addi afi GK 5,7 tonn í 3. Halldór afi GK 5,8 tonn í 3. Svala Dís KE 3,9 tonn í 3 og Sunna Líf GK 4,2 tonn í 2.
Í Sandgerði er búið að vera mest um að vera en veður spilar þarna mjög stóran þátt því það ætti að vera mun meira um að vera. Aðalbjörg RE er komin með 54 tonn í 3 róðrum og mest 18 tonn. Sigurfari GK 44 tonn í 3 og mest 19 tonn. Gísli Súrsson GK hefur líka náð að fara í þrjá róðra á línu og er kominn með 26 tonn og mest 11 tonn.
Óli á Stað GK 11 tonn í 1. Geirfugl GK 4,4 tonn í 1. Huld SH 1,7 tonn í 1 á færum. Benni Sæm GK 20 tonn í 1 á dragnót. Margrét GK 21 í 2 á línu. Séra Árni GK 3,9 tonn í 3, en hann landaði í Sandgerði og eina löndun í Keflavík.
Og þess má geta að Séra Árni GK var að koma úr vélaskiptum og er þetta því annar færabáturinn í Sandgerði sem er búinn að vera í vélarskiptum. Hinn báturinn sem var að fá nýja vél var báturinn Dímon GK.
Þetta hundleiðinlega veður sem er búið að vera að hrjá sjómenn á Suðurnesjunum núna í rúma viku og verður líklega eitthvað lengur er ekki bundið við þennan landshluta því um allt land hafa bátar aðeins komist í þetta einn til tvo róðra og sumir bátar víða um land hafa ekkert róið í mars, en þó hefur áhöfnin á hinum Einhamarsbátnum sem er gerður út, Auður Vésteins SU, harkað af sér og náð að fara í fimm róðra og landað 43 tonnum í og landað á Stöðvarfirði.
Í næstu viku þegar næsti pistill kemur verða veðurguðirnir vonandi eitthvað slakari á þessum djöfulgangi svo menn komist á sjóinn.






