Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Pistlar

Hálfgert mok á miðunum
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
fimmtudaginn 19. febrúar 2026 kl. 09:45

Hálfgert mok á miðunum

Febrúarmánuður er orðinn hálfnaður og veiðin hjá bátunum er búin að vera mjög góð og í raun mætti segja að það sé hálfgert mok, í það minnsta hjá línubátunum og dragnótabátunum.

Línubátarnir færðu sig margir hverjir til og frá Sandgerði og fyrir utan Grindavík og Krýsuvíkurbjarg. Fjölnir GK fór reyndar lengra því hann fór að suðurströndinni og landaði þá í Þorlákshöfn.

Dragnótabátarnir hafa mokveitt og sem dæmi þá kom Sigurfari GK með um 40 tonn í land sem fékkst í þremur köstum, en hann var við veiðar í Röstinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ef við lítum á nokkrar aflatölur, og byrjum í Grindavík. Þar er t.d. Stakkur GK sem er lítill línubátur og hefur hann landað 18,3 tonnum í sjö róðrum og mest 4,3 tonnum. Stakkur GK rær með balalínu og er hann eini báturinn á Suðurnesjum sem rær með balalínu.

Stóru línubátarnir tveir hafa veitt mjög vel, og er Páll Jónsson GK með 294 tonn í tveimur róðrum og Sighvatur GK 307 tonn í tveimur róðrum.

Í Grindavík eru nokkrir færabátar og þeirra hæstur er Sædís AK sem er komin með 9,5 tonn í sjö róðrum. Hafdalur GK með 5,5 tonn í fimm róðrum.

Hulda Björnsdóttir GK er búin að koma tvisvar til Grindavíkur með alls 320 tonn og þar af 178 tonn í einni löndun.

Í Keflavík hafa einungis netabátarnir hans Hólmgríms verið að landa eða reyndar má segja Njarðvík, því að litlu netabátarnir landa í Keflavík en Friðrik Sigurðsson ÁR landar í Njarðvík. Friðrik Sigurðsson ÁR hefur verið með trossurnar sínar undir Hafnabergi og siglir frá Njarðvík og fyrir Garðskaga á miðin. Þetta er töluvert langt ferðalag en Erling KE er líka með trossurnar sínar þar, en hann landar í Sandgerði og er það töluvert styttra ferðalag á miðin.

Friðrik Sigurðsson ÁR er kominn með 63 tonn í ellefu róðrum og mest 13 tonn. Erling KE með 91 tonn í tíu róðrum og mest 19 tonn í einni löndun.

Addi Afi GK og Emma Rós KE hafa að mestu verið með trossurnar sínar inni í Faxaflóa og rétt fyrir utan Akranes, en Svala Dís KE hefur farið með trossurnar sínar út að Stafnesi og kemur svo til Sandgerðis til að liggja þar við bryggju þangað til farið er út aftur til að draga þær.

Í Sandgerði er búið að vera ansi mikið um að vera og tveir nýir bátar bættust við hópinn þar en Indriði Kristins BA kom þangað og hefur gengið mjög vel hjá honum. Hefur hann landað um 73 tonnum í sex róðrum og mest 20,5 tonnum í einni löndun.

Hinn báturinn sem kom til Sandgerðis er dragnótabáturinn Stapafell SH. Eigandi erPétur sem er eigandi af bátum sem heita Bárður SH. Um er að ræða tvo báta með sama nafni en sitthvor stærðin. Hann byrjaði mjög vel því að hann kom með 27 tonn í land sem fengust í þremur köstum. Báturinn hefur farið í þrjá róðra þegar þessi pistill er skrifaður og hefur landað um 70 tonnum í þessum þremur róðrum. Þess má geta að þegar þessi pistill er skrifaður þá hefur Aðalbjörg RE landað 133 tonnum í tíu róðrum og er næsta aflahæsti dragnótabáturinn á landinu.

Pálína Þórunn GK kom loksins til Sandgerðis en togarinn hefur þegar hann hefur þurft að landa fyrir sunnan landað í Hafnarfirði. Hann kom til Sandgerðis með 35 tonn eftir einn og hálfan dag á veiðum. Pálína Þórunn GK var við veiðar utan við Sandgerði.