Loðnan á hraðferð suður með landinu
Þá er febrúarmánuður kominn í gang og ég er núna staddur í Hveragerði að skrifa. Ég horfi út um gluggann á herberginu mínu og sé þá á móti mér risastóra klukku sem sýnir 06:05, hmm, kolvitlaus klukka því að klukkan er núna að verða 22 þegar ég skrifa þennan pistil.
Reyndar var það nú þannig í dag meðan ég var að keyra frá Hornafirði og að Hveragerði að þá blasti við mér loðnuflotinn sem er við veiðar á loðnunni utan við suðurströndina, veiðarnar voru við Breiðamerkursand og er loðnan á hraðri ferð suður með landinu og loðnuskipin ættu að fara að sjást út við Reykjavík og utan við Sandgerði þegar líða fer að lokum febrúar og komið verður inn í mars. Ekki það að Suðurnesin fái gramm af loðnunni því að engin loðnuvinnsla er og ekkert fyrirtæki að frysta loðnu. Eiginlega frekar glatað.
Annars þá er núna í febrúar búið að vera mjög góð veiði og eiginlega mok hjá línubátunum og hafa margir bátanna komið með fullfermi allt upp í 20 tonn eftir eina lögn, til að mynda hefur Gísli Súrsson GK farið núna í tvo róðra frá Sandgerði og landað samtals um 40 tonnum í þeim, sem sagt fullfermi og það allt á einni lögn.
Þeim fækkaði reyndar línubátunum frá Sandgerði því að Hemmi á Stað GK, Guðbjörg GK og Óli á Stað GK fóru allir til Grindavíkur og Fjölnir GK fór til Grindavíkur og er að veiða á svipuðum stað og Jón Ásbjörnsson RE, að mestu við Þjórsárósa.
Báðir stóru línubátarnir frá Grindavík komu með fullfermi þangað, Páll Jónsson GK kom með 150 tonn og Sighvatur GK kom með 155 tonn.
Netaveiðin hefur verið frekar róleg í febrúar. Bátarnir byrjuðu með netin í sjó í Faxaflóa en nokkrir færðu sig síðan út fyrir Stafnes og þar hefur veiðin glæðst töluvert. Erling KE er kominn með 40 tonn í 5 róðrum og mest 14 tonn, en hann byrjaði í Njarðvík en er kominn til Sandgerðis. Friðrik Sigurðsson ÁR hefur verið með netin við Garðskagavita og er með 27 tonn í 6 róðrum. Emma Rós KE er inn í Faxaflóa og með 13 tonn í 7 róðrum. Addi Afi GK er líka inn í Faxaflóa og með 10 tonn í 7 róðrum.
Núna í byrjun febrúar komu nokkrir frystitogarar með sína fyrstu löndun á árinu en þeir voru að veiðum í janúar og lönduðu þá ekki. Baldvin Njálsson GK kom með 891 tonn til Hafnarfjarðar og var hann með 304 tonn af ýsu, 240 tonn af ufsa og 211 tonn af þorski.
Tómas Þorvaldsson GK kom líka núna snemma í febrúar með sína fyrstu löndun á árinu og var með 757 tonna afla og uppistaðan í þeim túr var þorskur 343 tonn, ýsa 239 tonn og ufsi 104 tonn.
Hrafn Sveinbjarnarson GK landaði fyrstur af frystitogurunum, því að hann landaði í lok janúar og kom þá með 582 tonn og var þorskur uppistaðan í aflanum eða 332 tonn, ýsa 84 tonn og ufsi 78 tonn.






