Spyr sá sem ekki veit
Það líður varla sá dagur að ekki séu sagðar nýjar fréttir af ævintýrum forseta Bandaríkjanna. Sumt af því er bara ekki hægt að skálda upp jafnvel þó að ríkur vilji væri til. Síðasta dæmið er ætlun hans að senda spítalaskip til Grænlands. Þar ríkir víst algjör óáran og enginn nema sjálfsagt Donald Trump, sem stöðvað hefur átta stríð og bjargað öllu bjarga þarf, hefur nú ákveðið að skerast í leikinn.
Framganga hans á fyrsta ári valdatíma síns ætti að vekja velflesta til umhugsunar um hvert stefnir með þá heimsmynd sem við höfum vanist. Hann, svipað og aðrir öfgasinnar, gengur út frá því sem gefnu, með góðum stuðningi kumpána sinna, að séu hlutirnir sagðir nógu oft verði þeir sannir. Því miður eru margir sem trúa því að þannig sé það. Þeir hinir sömu hika ekki við að bera fram alls konar hálfsannleik og útúrsnúninga til að afla sér fylgis við málstað sem að litlu leyti á sér stoð í raunveruleikanum.
Við höfum slíka talsmenn hér á Íslandi, jafnvel flokka sem þrífast best á því að sulla í drullupollum í þeirri von að skapa sundrungu og veiða stuðning á hæpnum forsendum. Hvernig í ósköpunum má það verða til þess að skapa betra samfélag á Íslandi að beina athygli að glæpatíðni í Svíþjóð og snúa í leiðinni öllum staðreyndum á haus hvað það varðar? Eða ætlast til þess að við sem þjóð höfum eitthvað um það að segja hvernig Spánverjar hagi sínum málum hvað innflytjendamál varðar. Þetta er dæmi um þann málflutning sem sá flokkur sem nú er á hvað mestu skriði í skoðanakönnunum þessa dagana og stór hluti þjóðarinnar kaupir. Erum við ekki betri en það að falla fyrir svona Trumphisma sem sagan hefur sýnt okkur að ekkert er á bak við? Spyr sá sem ekki veit?





