Þá var loðnulyktin allsráðandi
Núna er vel liðið á febrúarmánuð og veiðin hefur verið feikilega góð, og þá aðallega í dragnót og línu, en netabátarnir hafa líka veitt vel.
Ef við byrjum á netabátunum þá er Erling KE kominn með 168 tonn í 16 róðrum og Friðrik Sigurðsson ÁR 113 tonn í 18 róðrum.
Þeir hafa báðir fylgt svo öðrum eftir, verið með netin út af Sandvík, Stafnesi og núna síðan inn í Garðsjó. Minni netabátarnir hafa aftur á móti verið inn í Faxaflóa með netin og er Emma Rós KE með 44 tonn í 16 róðrum. Addi Afi GK 37 tonn í 16. Sunna Líf GK 32 tonn í 13 og Halldór Afi GK 27 tonn í 11. Svala Dís KE 32 tonn í 13. Allir þessir bátar og Friðrik Sigurðsson ÁR eru allir að veiða fyrir Hólmgrím.
Reyndar núna fyrir utan Grindavík og færist nær Sandgerði eru loðnuskipin við veiðar en gefin var út smá kvóti eða um 197 þúsund tonn og komu í hlut íslenskra skipa rúm 150 þúsund tonn.
Eins og ég hef ég áður skrifað um hérna ansi oft þá er það eiginlega grátlegt að meðan loðnan er hérna rétt fyrir utan að það komi ekki eitt einasta gramm af loðnu á Suðurnesin. Bara fyrr á þessari öld eða réttara sagt bara um aldamótin 2000, þá voru loðnuverksmiðjur í Grindavík, Sandgerði og Helguvík.
Og er þá ekki úr vegi að fara í smá ferðalag aftur í tímann og skoðum febrúar árið 2000, og loðnulöndun á Suðurnesjum.
Í febrúar árið 2000 komu á land í þessar þrjár hafnir á Suðurnesjum alls 41 þúsund tonn af loðnu og skiptist það þannig að í Sandgerði komu 6600 tonn af loðnu, í Grindavík komu á land rúm 16 þúsund tonn og í Helguvík komu á land rúm 18 þúsund tonn af loðnu.
Byrjum í Grindavík, þar landaði Seley SU mestum loðnuafla eða 5099 tonnum í 7 löndunum, en þetta skip átti sér enga sögu í Grindavík nema að Samherji átti skipið enda var Samherji með loðnuverksmiðju í Grindavík. Seley SU var lengst af togarinn Sölvi Bjarnason BA frá Bíldudal. Næstur á eftir honum var Oddeyin EA með 4348 tonn í 6 löndunum, og þetta skip átti sér mjög mikla sögu í Grindavík því að hann hét áður Albert GK og var gerður út frá Grindavík í hátt í 30 ár. Þorsteinn EA landaði 2152 tonnum í tveimur löndunum.
Í Helguvik var töluverður fjöldi skipa sem landaði því loðnuskipin sem lönduðu í Helguvík í febrúar árið 2000 voru alls 10 talsins og voru landanir í Helguvík alls 17. en mörg skipanna sem lönduðu í Helguvik voru skip sem komu með meira en eitt þúsund tonn af loðnu í einni ferð.
Hákon ÞH landaði mestum afla í Helguvík eða 2892 tonnum í þremur löndunum. Bjarni Ólafsson AK ( sem þá var nýlegur) var með 2530 tonn í 2, og mest 1327 tonn í einni löndun. Og má geta þess að þennan sama mánuð landaði gamli Bjarni Ólafsson AK 1001 tonni í Grindavík og hét þá báturinn Neptúnus ÞH . Örn KE var með 1056 tonn í einni löndun, Grindvíkingur GK 2201 tonn í tveimur löndunum.
Í Sandgerði voru þrír loðnubátar sem lönduðu afla og var Birtingur NK með 3249 tonn í fimm löndunum, Súlan EA með 2807 tonn í þremur löndunum og Bergur Vigfús GK 533 tonn í einni löndun. Á þessum tíma þá átti Síldarvinnslan í Neskaupstað loðnuverksmiðjurnar í Sandgerði og í Helguvík.
Sem sé, það var mikið líf og fjör í þessum þremur höfnum á Suðurnesjunum og loðnulyktin allsráðandi víða, en núna 26 árum síðan: Ekkert!




