Mars er langstærsti aflamánuður ársins
Þar með er febrúarmánuður kominn á enda og fram undan er sá mánuður sem í gegnum söguna hefur alltaf verið langstærsti aflamánuður ársins, ár hvert.
Já, það er marsmánuður. Ég á orðið stórt og mikið gagnasafn af aflatölum allt aftur til ársins 1894 og öll þessi tæplega 130 ár eiga eitt sameiginlegt, en það er að aflatölurnar fyrir báta í marsmánuði hafa alltaf verið ævintýralega miklar.
Þessi marsmánuður byrjaði vel, í það minnsta 1. mars, þar sem veður var gott og ansi margir bátar komust á sjóinn, en síðan tóku veðurguðirnir við og eru að gera sjómönnum aðeins lífið leitt.
Loðnan er búin að vera í töluvert miklum mæli hérna utan við Grindavík og áleiðis fram hjá Sandgerði og inn í Faxaflóa. Meðan loðnan gengur yfir þá dettur yfirleitt línuveiðin ansi mikið niður og til dæmis kom Fjölnir GK með aðeins 6 tonn í land eftir að hafa verið með línuna utan við Grindavík.
Línubátarnir frá Sandgerði voru allir með línuna Norð-vestur út frá Sandgerði og enginn hefur enn sem komið er lagt línuna nær landi; það mun koma þegar líður á marsmánuð.
Reyndar lenti áhöfnin á Óla á Stað GK í smá veseni þegar þeir voru að fara á sjóinn út frá Sandgerði þegar reim fyrir ferskvatnsdæluna um borð slitnaði en þá kom í ljós að legan fyrir hjólið sem heldur reiminni var orðin slitin og ónýt og það olli því að reimin hélst ekki á sínum stað og skemmdist og slitnaði.
Ákveðið var að kalla eftir aðstoð og fór áhöfn björgunarskipsins Hannesar Hafsteins út um nóttina að bátnum og dró hann til Sandgerðis. Óli á Stað GK var ekki langt frá landi, rétt rúmlega eina sjómílu frá baujunni við innsiglinguna til Sandgerðis, Hamarsundið. Allt gekk vel og er þetta annað útkallið frá áramótum sem áhöfn Hannesar Hafsteins fer í.
Óli á Stað GK hefur veitt ansi vel frá áramótum og var með 178 tonna afla í 14 róðrum í febrúar, að mestu landað í Sandgerði og síðan í Grindavík. Reyndar var veiðin framan af það góð hjá bátnum að hann var tekinn úr þorskinum og sendur í að eltast við ýsuna, og áhöfnin á bátnum lét það ekki stoppa sig og hélt áfram góðri veiði þangað til þeir stoppuðu 24. febrúar.
Lítum aðeins á fleiri línubáta. Gísli Súrsson GK var með 179 tonn í 14 róðrum og mest 20 tonn. Margrét GK var með 160 tonn í 14 róðrum og mest 17 tonn. Guðbjörg GK 135 tonn í 11 og mest 17 tonn. Hemmi á Stað GK 76 tonn í 10 róðrum og mest 10 tonn í einni löndun. Dúddi Gísla GK 64 tonn í 7 róðrum og mest 13,2 tonn.
Lítum aðeins á togarana. Mánuðurinn var góður hjá þeim. Hulda Björnsdóttir GK var með 693 tonn í 4 löndunum og mest 196 tonn í einni löndun. Sóley Sigurjóns GK var með 541 tonn í 5 og mest 149 tonn. Pálína Þórunn GK var með 274 tonn í 5 og mest 67 tonn.



