Með um 390 kíló á bala
Þá er þessi furðulegi janúarmánuður búinn.
Af hverju furðulegur? Jú, vanalega var þetta nú þannig að það voru oft miklar og þrálátar brælur í janúar og allt svo til á kafi í snjó en þessi janúar er búinn að vera frekar furðulegur, engar langar brælur og bara alls enginn snjór. Rétt svona smá föl eða varla það. Frekar furðulegt svo ekki sé meira sagt.
Janúar er sem sé búinn og munum við líta á nokkrar tölur yfir janúar en það ber að hafa það í huga að það voru ekki allar tölur komnar í hús til mín fyrir suma báta sem lönduðu 30. og 31. janúar, því að endurvigtun er oft mismunandi lengi að berast inn á Fiskistofu og þar af leiðandi til mín.
Seinni hlutann í janúar jókst veiðin hjá bátunum og þá aðallega hjá línubátum sem voru margir á veiðum út frá Sandgerði. Nokkrir bátar voru með línuna nálægt landi og voru þá út af Stafnesi, og aðrir fóru norður í Faxaflóa, um 15 mílur út frá Sandgerði.
Reyndar var það nú þannig að um miðjan janúar þegar bátarnir lögðu línuna utan við Stafnes og áleiðis að Hafnabergi var veiðin þetta 6 til 8 tonn í róðri, síðan þegar nær dró mánaðamótum janúar/febrúar var aflinn frá sama svæði kominn vel yfir 10 tonn í róðri.
Í það minnsta tveir bátar náðu yfir 200 tonna afla í janúar, þetta voru Óli á Stað GK sem var kominn með 222 tonn í 23 róðrum og mest 20,5 tonn í einni löndun og þar af í síðustu fjórum róðrum sínum í janúar þá landaði báturinn 48 tonnum og mest tæp 20 tonn í einni löndun sem fékkst á eina lögn. 22 þúsund krókar (uppreiknað á bala) gerir það 384 kíló á bala. Daginn eftir fór Óli á Stað GK með aðeins færri króka eða 15 þúsund króka og kom þá með tæp 14 tonn í land. Uppreiknað á bala þá gerir það um 390 kíló á bala. Þetta er feikilega góður afli.
Hinn báturinn sem náði yfir 200 tonna afla var Fjölnir GK sem var með 208 tonn í 23 róðrum og mest 14 tonn í einni löndun; í síðustu fjórum róðrum sínum var báturinn með 43 tonna afla.
Gísli Súrsson GK hóf veiðar snemma á árinu frá Grindavík en fór þá aðeins í þrjá róðra. Síðan liðu hátt í 2 vikur þangað til hann kom til Sandgerðis og hann mokveiddi þar, var með 126 tonn í 11 róðrum og þar af 57 tonn í síðustu fjórum róðrum sínum.
Margrét GK var með um 153 tonn í 18 róðrum, Geirfugl GK 74 tonn í 12, Dúddi Gísla GK 59 tonn í 9. Nýjasti báturinn í eigu Stakkavíkur, Guðbjörg GK, átti ansi góðan mánuð því að báturinn var með 161 tonn í 20 róðrum. Allir línubátarnir sem nefndir eru hérna að ofan lönduðu mestum hluta af aflanum sínum í Sandgerði.
Stóru línubátarnir tveir voru líka við veiðar utan við Sandgerði og inn í Faxaflóa og var líka góð veiði hjá þeim. Sighvatur GK er með 507 tonn í 4 róðrum og mest 153 tonn og Páll Jónsson GK var með 429 tonn í 4 róðrum og mest 158 tonn.
Frekar rólegt var hjá færabátunum seinni hlutann í janúar og fáir réru. Þó fór einn bátur sem vert er að nefna en það er Dímon GK. Dímon GK hætti róðrum í nóvember 2025 því að báturinn fór í vélaskipti í Keflavík þar sem sett var 450 hestafla vél í bátinn af Cummins gerð. Eftir nokkrar prufuferðir í Faxaflóann komst Dímon GK loksins í fyrsta róður sinn. Hann fór í Röstina og kom í land til Sandgerðis með 1,2 tonn og af því var ufsi um eitt tonn.
Þess má geta að þegar Dímon GK fór niður þá fór Ósk KE upp, því setja á hliðarskrúfu í bátinn að framan.





