Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Pistlar

Aðeins 6 kíló eftir af kvótanum hjá Stakkavík
Bergur Vigfús GK
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
miðvikudaginn 1. apríl 2026 kl. 06:33

Aðeins 6 kíló eftir af kvótanum hjá Stakkavík

Jæja. Þegar þessi pistill kemur þá er aprílmánuður kominn í gang. Í enda febrúar skrifaði ég að fram undan væri stærsti aflamánuður ársins, mars, en það fór nú heldur betur ekki alveg þá leið. Einn versti mánuður í ansi mörg ár, og þá aðallega út af endalausum brælum.

Þá daga sem bátarnir komust á sjóinn var veiðin góð, en róðrarnir hjá bátunum og þá sérstaklega línubátunum voru vægast sagt virkilega fáir.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Þó svo að minni bátarnir gætu lítið komist á sjóinn þá voru stóru bátarnir sem náðu að hanga úti í þessum leiðinda veðragangi, og helst voru það stóru línubátarnir frá Grindavík, togarinn Hulda Björnsdóttir GK og netabátarnir Friðrik Sigurðsson ÁR og Erling KE.

Lítum aðeins á og horfum þá á róðrana hjá bátunum. Erling KE náði að komast í 20 róðra og veiddi vel, var með 441 tonn í 20 róðrum og mest 47 tonn í einni löndun.

Friðrik Sigurðsson ÁR var með 18 landanir og 124 tonna afla. Síðan koma tveir minni netabátar sem voru að veiðum í Faxaflóa og undir Vogastapanum. Halldór Afi GK með 32 tonn og Addi Afi GK 41 tonn, báðir í 16 róðrum. Sunna Líf GK 39 tonn og Svala Dís KE 26 tonn báðir eftir 15 róðra.

Aðalbjörg RE náði að harka af sér og fór í fjórtán róðra og var sá dragnótabátur á Suðurnesjunum sem fór í flesta róðrana, og mokveiddi báturinn, var með 263 tonn í þessum fjórtán róðrum og mest 25 tonn í einni löndun. Sigurfari GK fór líka í fleiri en tíu róðra á dragnót og var með 208 tonna afla í ellefu róðrum.
Gísli Súrsson GK var sá línubátur sem fór í flesta róðra í mars, en þó ekki nema tólf róðra, og var með 100 tonna afla.

Færabáturinn Líf NS náði að fara í tíu róðra í mars, en hann landaði til skiptis í Sandgerði og Keflavík, var með 7,5 tonn.

Línubáturinn Stakkur GK, sem réri með balalínu, fór í níu róðra og var með 17 tonna afla og annar línubátur frá Grindavík, Fjölnir GK, var líka með níu róðra og 73 tonna afla. Það segir um margt um hversu erfiður mars mánuður var, að Fjölnir GK, sem þó er með tvær áhafnir, náði aðeins að fara í níu róðra í mars.

Núna eru aðeins fimm mánuðir eftir af þessu kvótaári og svona slæmur marsmánuður hefur töluvert að segja með það hvort bátarnir nái kvóta sínum, því núna er engin gleði og hamingja fram undan, því að hrygningarstoppið er að koma í apríl.

Ef við lítum á nokkra báta þá kemur í ljós að Fjölnir GK á ansi mikið eftir af sínum kvóta eða 811 tonna kvóta, Margrét GK er kvótalaus, en öll úthlutun Nesfisks á krókabát er á Bergi Vigfúsi GK, en Margrét GK veiðir að mestu allan þann kvóta, og Helgi og hans áhöfn þurfa heldur betur að spýta í lófana því óveiddur kvóti núna er um 957 tonn.

Hjá Einhamri er ansi mikið óveitt, eða 761 tonn, en það er að mestu á Gísla Súrssyni GK, en mun síðan deilast á hina bátana þegar líður á þetta kvótaár.

Hjá Stakkavík er aðeins öðruvísi umhorfs, þeir eiga nokkuð marga báta. Guðbjörg GK, Óli á Stað GK, Geirfugl GK, Hópsnes GK og Katrín GK eru allir kvótalausir sem þýðir að þeir fengu engan úthlutaðan kvóta, en kvótinn fór á Gulltopp EA og Hemma á Stað GK. Þegar þessi pistill er skrifaður eru aðeins 6 kíló eftir af kvótanum hjá Stakkavík, en þeir hafa verið að fá kvóta úr þessum stóra potti sem Bergur Vigfús GK er með, óveidd 957 tonn. Reyndar veiðir Bergur Vigfús GK ekki gramm af þessum kvóta, Margrét GK sér að mestu um það og síðan að einhverju leyti Stakkavíkurbátarnir.