Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Pistlar

Hrygningarstopp í gangi og grásleppuveiðar að hefjast
Laugardagur 11. apríl 2026 kl. 06:45

Hrygningarstopp í gangi og grásleppuveiðar að hefjast

Aprílmánuður er kominn í gang og hann byrjar mjög rólega enda voru páskar og svo til enginn bátur á sjó.

Reyndar fóru nokkrir bátar á sjó frá Sandgerði og var aflinn hjá þeim þokkalegur. Helst voru það línubátarnir sem fóru út, en dragnótabátarnir hafa ekkert róið það sem af er apríl nema að Sigurfari GK kom með 28 tonn í land úr einni löndun fyrir páskana.

Nesraf
Nesraf

Línubátarnir sem réru um páskana veiddu nokkuð vel. Margrét GK var með um 11 tonna afla. Hemmi á Stað GK var með um 8 tonn. Guðbjörg GK 13 tonna afla. Óli á Stað GK með um 15 tonn og Geirfugl GK með um 7 tonna afla.

Í apríl er hrygningarstoppið reyndar nokkuð víðfeðmt, það hófst 1. apríl, þá voru veiðar meðfram ströndinni svo til frá Suðurströnd, meðfram Krýsuvíkurbjargi út með Reykjanesi og inn í Faxaflóa, þar eru veiðar óheimilar til 11. apríl.

Utan við Sandgerði, á svæði sem telur frá Hafnaleir og áleiðis að Garðskagavita, eru veiðar óheimilar með dragnót, botnvörpu og netum. Þetta er utan við 3 mílurnar.

Það verður því frekar erfitt fyrir bátana að komast á svæði en þeir geta það með því að fara út fyrir lokuðu svæðin, þó svo að færabátar geti lítið sem ekkert verið á veiðum út af lokunum.

Svæðin frá Vík í Mýrdal og alveg út að Látrabjargi á Vestfjörðum eru þau svæði á landinu sem flestar lokanir eru í gildi, mun minna er um lokanir fyrir norðan og austan, enda samkvæmt Hafró þá er þorskurinn að hrygna á þessu stóra svæði.

Enn sem komið er er enginn bátur byrjaður á grásleppuveiðum, en núna í ár er grásleppan í kvóta og verður bara þetta ár, því núna hefur verið ákveðið að afnema að grásleppan sé í kvóta og verður því á næsta ári að grásleppubátar fái tiltekinn fjölda daga sem þeir mega veiða grásleppu.

Þetta er og var mjög umdeilt, margir vildu hafa kvóta á grásleppunni og aðrir vildu ekki hafa kvóta. Reyndar í ár byrjuðu fyrstu bátar á grásleppu í janúar á þessu ári og aldrei áður hafa bátar hafið grásleppuveiðar svona snemma á árinu.

Frá Suðurnesjum hafa ekki margir bátar verið á grásleppu. Í fyrra var enginn bátur í Grindavík á grásleppu en í Sandgerði var Guðrún GK 96 á grásleppu og var þá með um 18 tonna afla og mest 3,9 tonn af grásleppu í einni löndun.

Guðrún GK 96 er gerð út af Baltic Útgerð ehf. í Sandgerði og fyrirtækið á annan bát. Það er ekkert verið að flækja nafnamálin því að hinn báturinn heitir líka Guðrún, Guðrún GK 90. Sá bátur var tekinn á land í Sandgerði í nóvember í fyrra og gerði Sævar, sem er eigandinn að bátunum, nokkrar breytingar á honum, setti nýjan og stærri dýptarmæli og þurrpúst á bátinn svo dæmi sé tekið. Guðrún GK 90 fór á flot núna í lok mars og fór í einn róður á færum og kom með 1,4 tonn í land, en báðir bátarnir eru með töluvert af grásleppukvóta eða alls um 23 tonn, en Sævar notar Guðrúnu GK 96 í grásleppuna enda er Guðrún GK 90 ekki með netabúnað.