Langbest Sumardagurinn fyrsti
Langbest Sumardagurinn fyrsti

Pistlar

Þriggja stiga skot
Föstudagur 24. apríl 2026 kl. 09:41

Þriggja stiga skot

Undirrituð mætti í 20 ára fermingarafmæli fyrir stuttu. Frábær hópur af Holtskælingum var þar saman kominn og margir sem ég hafði hvorki séð né hitt síðan í grunnskóla, þó svo að við byggjum nú flest enn í sama bæjarfélaginu. Maður áttar sig varla á þeim sterku böndum sem tengja okkur fyrr en við erum öll komin saman aftur. Eftir tíu ára skólagöngu verðum við dálítið eins og systkini. Endalausar sögur og dásamlegar minningar. Við höfðum lítið breyst, svona fyrir utan hárþynninguna á flestum. Ég hló svo mikið að ég vaknaði með harðsperrur í kinnunum daginn eftir.

Í Holtaskóla var gott að vera. Starfið allt til fyrirmyndar þó að unglingsárin séu kannski minnistæðust. Glósubækur og gráðubogar. Á milli kennslustunda lyppuðust unglingarnir svo niður í sófana í Gryfjunni. Mættu með heimabrennda geisladiska og þrættu um hver þeirra yrði spilaður í frímínútunum. Þá var komið á þeirri reglu að 10. bekkingar fengju að stjórna tónlistinni og hinir yrðu bara að bíða eftir að komast á þau herrans ár.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Svefninn á þessum tíma mætti iðulega afgangi og unglingurinn hékk fram eftir öllu á MSN. Sofnaði svo fram á borðið í náttúrufræðitíma hjá Ingu Sveinu. Það kostaði símtal heim. Mamma var ekki lengi að taka netið úr sambandi. Þetta kæmi ekki fyrir aftur á hennar vakt. Fékk 10 í öllum prófum í náttúrufræði það sem eftir var, aðallega af mótþróa.

Björn Víkingur sá um stærðfræðina og kenndi okkur af sinni alkunnu list. Svo var reyndar annað mál hvort við værum nægilega móttækileg fyrir fræðinni, illa sofin og önug. Í þá daga voru hvorki höfuðföt né tyggjó leyfð í skólum en eitt sinn gengur bekkjarfélagi okkar inn í stærðfræðitíma með húfuna á höfðinu. Björn spyr hann hver ástæðan sé og drengurinn svarar að hann hafi þurft að skjótast á klósettið. „Var rok á leiðinni?“ spyr kennarinn.

„Já“ segir nemandinn og horfir sigri hrósandi með svarið yfir bekkinn. Björn Víkingur gaf drengnum ekkert eftir og svarar: „Þá áttu bara að labba hægar“. Hvort að húfan hafi svo fokið út um gluggann í þriggja stiga skoti kennarans verður látið ósagt en enn stífari harðsperrum olli sagan í kinnum okkar fermingarbarnanna tuttugu árum seinna.

Íris Valsdóttir er höfundur Lokaorða í Víkurfréttum í þessari viku.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir