Stutt í strandveiðitímabilið
Aprílmánuður er orðinn hálfnaður og hrygningarstoppið í fullum gangi. Þó er búinn að vera heill haugur af bátum og togurum djúpt úti frá Reykjanesi og Sandgerði.
Þegar þessi pistill var skrifaður voru til dæmis 14 togarar og frystitogarar þarna úti. Línubátarnir Rifsnes SH, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK ásamt ansi mörgum 30 tonna línubátum, eins og Særif SH, Geirfugl GK, Kristján HF, Indriða Kristins BA og Margrét GK svo dæmi séu tekin. Allir þessir bátar voru að landa í Sandgerði nema Særif SH sem kom með um 12 tonn til Grindavíkur.
Nokkrir færabátar reyndu fyrir sér um 50 mílur út frá Sandgerði út fyrir Eldey, Sólon KE, Hawkerinn GK og Séra Árni GK. Agla ÍS var þarna líka og kom frá Grindavík. Aflatölur fyrir bátana voru ekki komnar þegar þessi pistill var skrifaður því bátarnir voru enn þá á sjónum.þ
Eftir stendur þá að netabáturinn Saxhamar SH frá Rifi er eini báturinn sem hefur verið að róa í stoppinu á þeim slóðum sem stoppið er. Saxhamar SH er í netarallinu svokallaða og hans svæði er Faxaflói og að Reykjanesvita. Báturinn byrjaði að landa í Reykjavík og landaði þar 94 tonnum í 3 róðrum og mest 54 tonnum í einni löndun.
Kom svo til Sandgerðis og hefur landað þar um 65 tonnum í tveimur róðrum. Ansi góður afli hjá Saxhamri SH í netarallinu og verður fróðlegt að sjá hvort að þetta skili sér í meiri þorski í kvótaúthlutun næsta fiskveiðiárs.
Reyndar var Saxhamar SH ekki einn sem réri innan svæðis sem er lokað, því Guðrún GK 90, sem er í eigu Sævars sem líka á færabátinn Guðrúnu GK, fór út og hóf veiðar á grásleppu, en hann fór út frá Sandgerði og lagði netin skammt undan landi við Hvalsnes.
Núna þetta ár er grásleppan í kvóta og er fyrirtækið sem gerir út báða bátana með um 24 tonna grásleppukvóta sem er töluvert. En á næsta ári verður horfið frá kvóta í grásleppu og því verða dagarnir aftur settir á.
Dragnótabáturinn Sigurfari GK er farinn vestur í Patreksfjörð, en hann er að fara að veiða að mestu steinbít. Undanfarin ár hefur báturinn fyllt sig og komið drekkhlaðinn til Sandgerðis, til að mynda í fyrra þá kom báturinn með 65 tonn í land og af því var steinbítur 34 tonn í einni ferð.
Lestarrýmið í Sigurfara GK er töluvert og svipað mikið og hjá 29 metra togaranum Pálínu Þórunni GK sem Nesfiskur gerir líka út. En Pálína er þegar þessi pistill er skrifaður líka á veiðum djúpt úti í þessum 14 togara hóp, og verður fróðlegt að sjá hvort að Pálína Þórunn GK komi loksins í heimahöfn sína, en frá áramótum hefur togarinn aðeins í eitt skipti komið til Sandgerðis, en aftur á móti í 8 skipti til Hafnarfjarðar.
Núna þegar að aprílmánuður er orðinn hálfnaður þýðir það að það er mjög stutt í að strandveiðitímabilið hefjist. Strandveiðisjómenn hafa ýtt á að fá 48 daga en enn þá er ekkert fast í hendi með að það að þeir fái 48 daga, því að undanfarin ár hefur þorskkvótinn sem strandveiðisjómenn fá klárast um miðjan júlí.
Svo það verður áhugavert að sjá hvernig þetta strandveiðitímabil mun verða. Verður stoppað í júlí eða fá bátarnir að veiða fram í ágúst? Góð spurning.







