Pistlar

Allt um gang fiskveiða í lok apríl
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 8. maí 2026 kl. 07:31

Allt um gang fiskveiða í lok apríl

Þá er aprílmánuður á enda og eitt sinn var aprílmánuður einn af stærstu aflamánuðum ársins en þá var oft mokveiði á vertíðum. Eftir að hrygningarstoppið var sett á í apríl missti aprílmánuður doldið vægi sitt sem stærsti aflamánuður hvers árs. Engu að síður var aflinn hjá bátunum góður eftir stoppið. Reyndar voru síðustu dagarnir í apríl hundleiðinlegir því leiðinda veður var í gangi og sjósókn lítil.

Lítum aðeins á hvernig bátunum gekk í apríl. Í Grindavík var Páll Jónsson GK með 416 tonn í þremur löndunum og mest 154 tonn í einni löndun, Sighvatur GK var með 506 tonn í fimm löndunum og mest 132 tonn, en báðir þessir bátar eru Vísisbátar með beitningavél.

Aðalbros
Aðalbros

Dúddi Gísla GK var með 66 tonn í 6 og mest 15,4 tonn. Gísli Súrsson GK 56 tonn í 4 og mest 15,5 tonn. Fjölnir GK 131 tonn í 10 og mest 16,2 tonn. Reyndar landaði Fjölnir GK líka í Sandgerði og Keflavík. Hann var með 11 tonn í Keflavík og 28 tonn í Sandgerði í tveimur róðrum. Særif SH var með 24 tonn í 2. Hulda Björnsdóttir GK var með 341 tonn í 2 og auk þess þá landaði togarinn 142 tonnum í Hafnarfirði og 180 tonnum í Þorlákshöfn.

Í Keflavík, Njarðvík var mest um netabáta sem lönduðu þar, og Erling KE hóf veiðar eftir stoppið, en hann réri ekkert í apríl áður en stoppið kom, var hann með 144 tonn í 8 róðrum. Grímsi GK var með 89 tonn í 11 róðrum. Addi Afi GK 33 tonn í 8 og mest 9,2 tonn í einni löndun. Emma Rós KE 30 tonn í 8 og Sunna Líf KE 29,7 tonn í 7. Nýr bátur hóf netaveiðar í apríl og var það Elley GK, sem er cleopatra bátur, og var með 15,5 tonn í 7 róðrum. Er hann eins og hinir bátarnir fyrir utan Erling KE að veiða fyrir Hólmgrím
Særif SH kom líka í Sandgerði og landaði þar 84 tonnum í 5 róðrum og mest 22 tonnum í einni löndun. Töluvert mikið var um að vera í Sandgerði og þar var t.d. Saxhamar SH sem var í netarallinu og landaði 122 tonnum í 4 róðrum. Dragnótabátarnir réru lítið og hæstur af þeim var Sigurfari GK með 114 tonn í 7 róðrum og mest 33 tonn. Aðalbjörg RE var með 96 tonn í 6 og mest 23,4 tonn. Siggi Bjarna GK 55 tonn í 5. Margrét GK sem er á dragnót var með 44 tonn í 4 og mest 21 tonn.

Línubátarnir mokveiddu og var Indriði Kristins BA með 144 tonn í 10 róðrum og mest 23 tonn. Kristján HF var með 174 tonn í aðeins 9 róðrum og mest 25 tonn. Margrét GK 119 tonn í 8 og mest 21 tonn. Óli á Stað GK með 136 tonn í 8 og mest 24 tonn. Þess má geta að núna er búið að stoppa Óla á Stað GK og fer hann ekki aftur á veiðar fyrr en í júlí á þessu ári.

Guðbjörg GK réri lítið í apríl, enda fór báturinn í Njarðvík, því veltitankur var settur framan við brúna á bátnum, en báturinn valt töluvert mikið og veltitankurinn á að hægja á veltunni. Síðasta löndun bátsins var ansi góð en báturinn kom með 20 tonn í Sandgerði.

Pálína Þórunn GK landaði loksins í heimahöfn sinni, og var þar með 203 tonn í 3 löndunum og þar af 77 tonn sem fengust eftir aðeins tvo daga á veiðum, og var ýsa uppistaðan í þeim afla eða 44 tonn. Var Pálína Þórunn GK með 97 tonn af ýsu í þessum þremur löndunum.

Sóley Sigurjóns GK er á Siglufirði og er þar á rækjuveiðum. Togarinn var með 188 tonn í fjórum löndunum og af þeim afla var rækja 111 tonn. Rækjan af Sóleyju Sigurjóns GK fer á Hvammstanga til Meleyrar til vinnslu, en Nesfiskur á þá rækjuverksmiðju, og restinni af fiskinum er að mestu ekið til Sandgerðis og Garðs til vinnslu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar