Pistlar

Mennt er máttur
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 05:26

Mennt er máttur

Þegar við hjónin vorum að velta því fyrir okkur í ársbyrjun 2009 hvort ég ætti að gefa kost á mér í oddvitasætið í Suðurkjördæmi í alþingiskosningunum í apríl, eins og skorað hafði verið á mig víða að úr kjördæminu að gera, var að ýmsu að huga. Ég hafði verið kjörin á þing 2007, og þegar þarna var komið við sögu 2009 áttum við tvo drengi – 6 mánaða og 6 ára – vorum búin að koma okkur vel fyrir í Garðabænum og bjuggum í draumahúsinu okkar á Flötunum. Ég þekkti auðvitað mitt heimafólk og vissi að ef ég tæki þessa ákvörðun þá værum við líka að taka ákvörðun um að flytja til Keflavíkur – hvort sem ég næði markmiðinu eða ekki. Þetta var því stór og mikil ákvörðun að taka og snerti ekki bara póli-tískar væntingar mínar heldur framtíð fjölskyldunnar allrar. Garðabærinn var afbragðs fjölskyldubær með frábæra skóla og leikskóla sem eldri sonurinn var þegar orðinn partur af – vorum við tilbúin til að mögulega rýra menntun þeirra fyrir pólitíska bröltið í mér?

Það sem ég vissi ekki þarna var hvað skólamálin í Reykjanesbæ höfðu tekið miklum stökkbreytingum á undangengnum árum undir sterkri forystu þáverandi bæjarstjóra, Árna Sigfússonar. Hann setti menntamálin í algjöran forgang þegar hann tók við árið 2002 og var bærinn kominn í fremsta flokk þegar við tókum þá ákvörðun að ég gæfi kost á mér – ákvörðun sem var þá orðið mjög einfalt að taka með þessa vitneskju – við fluttum á Heiðarbrúnina og drengirnir nutu góðrar menntunar í Holtaskóla og leikskóla á yndislegu Gimli. Við vorum á réttum tíma á réttum stað.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Hafandi búið í París síðastliðin tæp fimm ár sé ég að við erum heppin að hafa aftur verið á réttum tíma á réttum stað. Ég hef fylgst með umræðunni um þróun skólamála á Íslandi, sem móðir og sem starfsmaður OECD fylgst með dvínandi árangri í Pisa-könnunum og ekki síst skelfilegum niðurstöðum hvað lesskilning drengja varðar. Á sama tíma hefur yngri sonur okkar, sem var 13 ára þegar við fluttum, blómstrað í frábærum alþjóðlegum skóla þar sem metnaðurinn og kröfurnar eru miklar og kennsluaðferðir til algjörrar fyrirmyndar. Ég verð að viðurkenna að ég er ótrúlega þakklát.

Horfandi á kosningabaráttuna úr fjarlægð hér í París er algjörlega augljóst hvert stóra kosningamálið eigi að vera – að tryggja menntun barnanna okkar og þar með velsæld og framtíð sveitarfélaganna og landsins okkar. Þetta gerist nefnilega ekki af sjálfu sér, það þarf stefnu, skýran vilja og metnað til að ná fram árangri – samanber dæmið hér að ofan um þegar Reykjanesbær tók stökkið.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar