Íþróttir

Keflavíkurkonur unnu ÍA
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 30. maí 2026 kl. 18:02

Keflavíkurkonur unnu ÍA

Keflavík vann mikilvægan 2-1 sigur á ÍA í 5. umferð Lengjudeildar kvenna á HS Orku vellinum í dag.

Eftir markalausan og tíðindalítinn fyrri hálfleik þar sem Skagakonur voru betri gekk betur hjá Keflavík eftir hálfleiksræðu Vedran Medenjak, þjálfara. Þær uppskáru tvö mörk. Hilda Rún Hafsteinsdóttir kom heimakonum yfir á 71. mínútu og aðeins sex mínútum síðar tvöfaldaði Ariela Lewis forystuna þegar hún skoraði annað mark Keflavíkur á 77. mínútu.

Skagakonur gáfust þó ekki upp og Lilja Björg Ólafsdóttir minnkaði muninn fyrir ÍA á 82. mínútu. Nær komust gestirnir hins vegar ekki og Keflavík landaði þremur mikilvægum stigum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Sigurinn styrkir stöðu Keflavíkur í deildinni eftir fimm umferðir en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 7 stig en tvö efstu liðin, KR og Haukr eru með 12 stig. Grótta er í 3. sæti með stig.

Mörk leiksins:

  • 1-0 Hilda Rún Hafsteinsdóttir (71.)
  • 2-0 Ariela Lewis (77.)
  • 2-1 Lilja Björg Ólafsdóttir (82.)

Keflavík-ÍA Lengjud. kvenna 30. maí

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar