Fréttir

Ný bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekin til starfa
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 3. júní 2026 kl. 10:41

Ný bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekin til starfa

Ný bæjarstjórn Reykjanesbæjar kom saman í fyrsta sinn á fundi þriðjudaginn 2. júní þar sem kosningaúrslit, skipan í embætti og nefndir voru staðfest. Áður en bæjarstjórnarfundur hófst í ráðhúsinu á Ásbrú kom bæjarstjórnin saman til ljósmyndatöku í stofunni í Vatnsnesi, sem hefur verið gert upp á myndarlegan hátt. 

F.v.: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B), Róbert J. Guðmundsson (B), Guðbergur Reynisson (D), Kristján Pétur Kristjánsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B), Vilhjálmur Árnason (D), Hjörtur M. Guðbjartsson (S), Gunnlaugur Kárason (M), Margrét Þórarinsdóttir (D), Alexander Ragnarsson (D) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S).

Í nýrri bæjarstjórn eru þrír nýliðar, þeir Vilhjálmur, Kristján Pétur og Gunnlaugur Kárason. VF/pket.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Ný bæjarstjórn við upphaf fyrsta fundar hennar 2. júní.

Vilhjálmur Árnason í ræðustól í fyrsta sinn í Reykjanesbæ.

Margrét Þórarinsdóttir, forseti bæjarstjórnar.

Gestir á fyrsta fundi bæjarstjórnar 2. maí.

Guðný Birna Guðmundsdóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar hóf fundinn á því að greina frá úrslitum kosninganna.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, fráfarandi formaður bæjarráðs flutti bókun frá minnihlutanum þar sem sett var út á hvernig staðið væri að tilkynningu um nýjan bæjarstjóra.

Fulltrúar frá Viðreisn, sem náði ekki manni inn í bæjarstjórn voru mættir á fyrsta bæjarstjórnarfund nýrrar bæjarstójrnar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar