Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Suðurkjördæmi
Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í nýrri skoðanakönnun Gallup og RÚV og mælist með 30,2% í Suðurkjördæmi. Miðflokkur og Samfylking koma næst en Flokkur fólksins þurrkast út.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 3 þingmenn. Miðflokkurinn mælist með 23,7% og fengi líka 3 menn, Samfylking fékk 21,1% í könnuninni og fengi tvo þingmenn. Framsókn fékk 9,4% og einn mann miðað við niðurstöðurnar.
Viðreisn fékk í könnuninni 5,7% og næði ekki inn manni en flokkurinn var með mann eftir síðustu alþingiskosningar.
Flokkur fólksins sem var stærstur eftir síðustu kosningar í Suðurkjördæmi með 20% mælist með 4,5% og missir báða þingmenn sína.
VG fékk 2,9% og Sósíalistaflokkurinn 1,9%, Píratar 0,5%.







