K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Fréttir

Nemendur úr Njarðvíkurskóla fengu Mannréttindabikar ÖBÍ
Þriðjudagur 2. júní 2026 kl. 09:47

Nemendur úr Njarðvíkurskóla fengu Mannréttindabikar ÖBÍ

Nemendurnir Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska í 5. bekk Njarðvíkurskóla náðu frábærum árangri þegar þær komust alla leið í úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026 með hugmynd sína, „Bókin ykkar“.

Hugmyndin byggir á því að skapa aðgengilega og skemmtilega bók fyrir blinda þar sem saman fara áþreifanlegt efni, hljóðupplifun og blindraletur. Markmiðið er að gera lestur og upplifun bóka ríkari og aðgengilegri fyrir alla.

Lokahóf keppninnar fór fram laugardaginn 30. maí á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þar komu saman efnilegustu nýsköpunarnemendur landsins til að kynna hugmyndir sínar og fagna árangri sínum eftir viðburðaríkt keppnisár.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Mikil samkeppni var í keppninni en alls bárust yfir 500 hugmyndir frá nemendum í 5.–7. bekk víðs vegar af landinu. Aðeins 25 hugmyndir voru valdar til úrslita og því er árangur þeirra Hjördísar Lilju og Stefaníu sérstaklega glæsilegur.

Í aðdraganda lokahófsins tóku úrslitanemendur þátt í skapandi vinnustofum þar sem þau fengu tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram, vinna með sérfræðingum og undirbúa kynningar á verkefnum sínum.

Að lokum fengu þær Mannréttindabikar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Öryrkjabandalags Íslands og var það Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands sem veitti þeim verðlaunin.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar