Moss heldur Michelin stjörnu fjórða árið í röð
Moss, veitingastaðurinn á The Retreat við Bláa Lónið, hefur öðlast Michelin-stjörnu fjórða árið í röð. Moss er eini hótel veitingastaðurinn á Íslandi með Michelin-stjörnu. Viðurkenningin var staðfest við hátíðlega athöfn Michelin Guide í Kaupmannahöfn í dag.
Moss hefur frá árinu 2020 verið undir stjórn Agga Sverrissonar yfirmatreiðslumeistara. Aggi er fæddur og ólst upp í Reykjavík, en byggði upp feril sinn í London þar sem hann fór fyrir Texture Restaurant & Champagne Bar. Texture hlaut Michelin-stjörnu árið 2010 og hélt henni í tíu ár.
Á Moss hefur Aggi unnið áfram með þá sýn sem hefur einkennt feril hans: einfaldleika, árstíðarbundin hráefni, nákvæm vinnubrögð og skapandi nálgun við matargerð. Matseðlar Moss taka reglulegum breytingum og þar mætast íslensk hráefni, asísk áhrif og næm tilfinning fyrir náttúru landsins. Árið 2023 hlaut Moss Michelin-stjörnu og hefur haldið henni samfellt síðan.
„Að halda Michelin-stjörnunni fjórða árið í röð skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Þetta er viðurkenning fyrir allt teymið á Moss og alla þá sem koma að upplifun gesta á The Retreat. Michelin-staðallinn skapar metnað, dregur að sér hæfileikaríkt fólk og gerir kröfur um framúrskarandi gæði í öllu sem við gerum. Fyrir gesti hefur stjarnan líka raunverulegt gildi. Því fylgir bæði ábyrgð og mikill ávinningur að halda henni,“ segir Aggi Sverrisson, yfirmatreiðslumeistari Moss.
Árið 2024 varð Aggi sendiherra Dom Pérignon, fyrstur matreiðslumanna á Norðurlöndum til að hljóta þann heiður. Sama ár varð Moss hluti af Dom Pérignon Society, lokuðu alþjóðlegu samfélagi veitingastaða sem gefur staðnum aðgang að sjaldgæfum árgerðum frá vínframleiðandanum.
Michelin-stjörnur eru veittar til eins árs í senn og veitingastaðir þurfa því stöðugt að standast strangar gæðakröfur Michelin Guide. Moss hefur haldið Michelin-stjörnu samfellt frá árinu 2023 og hlýtur nú aðra stjörnu fyrir þá heildarupplifun sem teymið hefur byggt upp með framúrskarandi hráefnum, sköpun, hönnun og þjónustu.









