Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Mannlíf

Landsmót kvennakóra haldið í Reykjanesbæ
Mánudagur 1. júní 2026 kl. 10:42

Landsmót kvennakóra haldið í Reykjanesbæ

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið 11.-13. júní næstkomandi í Reykjanesbæ. Kvennakór Suðurnesja er gestgjafi mótsins að þessu sinni en þetta er 12. landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra. Mótin hafa verið haldin víðs vegar um landið á þriggja ára fresti og er þetta í annað skiptið sem Suðurnesjakonur standa fyrir mótinu.

Um 330 kvennakórskonur frá öllum landshlutum munu koma saman í söng, gleði og tónleikahaldi. Kórarnir, sem eru 12 talsins, munu flytja eigin dagskrá á tónleikum í Stapa, Hljómahöll föstudaginn 12. júní kl. 18. Þar verður flutt skemmtileg tónlist úr ýmsum áttum, en hver kór mun flytja 2-3 lög.

Kórarnir sem koma fram eru Kvennakórinn Senjórítur frá Reykjavík, Kvennakórinn Heklurnar frá Mosfellsbæ, Kvennakór Ísafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar, Kvennakórinn Ymur frá Akranesi, Léttsveit Reykjavíkur, Kvennakór Akureyrar, Kvennakórinn Hrynjandi frá Reykjavík, Kvennakór Reykjavíkur, Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakórinn Ljósbrá frá Rangárvallasýslu auk gestgjafa mótsins, Kvennakórs Suðurnesja.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Seinni tónleikarnir verða í Stapaskóla laugardaginn 13. júní kl. 16 og bera þeir yfirskriftina „Eldgyðjur“ sem er þema landsmótsins og var valið í tengslum við

eldsumbrotin sem hafa verið á Reykjanesi síðustu ár. Á þessum tónleikum munu kórarnir sameinast og flytja afrakstur sameiginlegra æfinga. Þá mun hópurinn skiptast í 5 smiðjur en mismunandi þema er í hverri smiðju. Lagavalið er mjög fjölbreytt, þekkt íslensk lög, kvikmyndatónlist og gospel. Stjórnendur þessara hópa eru Ágota Joó en hún stjórnar smiðjunni. Kæru systur, Arnór B. Vilbergsson verður með smiðju sem tileinkuð er Hljómum, þar sem flutt verða lög með hinni ástsælu hljómsveit frá Keflavík,

Dagný Þ. Jónsdóttir stjórnar smiðju með vinsælum lögum úr kvikmyndum sem nefnist Hvað er í bíó?, Gísli Magna verður með smiðjuna KONA og Rafn Hlíðkvist stjórnar Gospelgyðjum.

Hápunktur tónleikanna verður síðan þegar allur hópurinn sameinast í frumflutningi landsmótslagsins sem heitir „Taktur trumbunnar“. Hefð er fyrir því að sérstakt mótslag er samið fyrir hvert landsmót og tengist það því svæði sem mótið er haldið á. Að þessu sinni er lagahöfundurinn hinn landsþekkti og dáði Suðurnesjamaður Magnús Þór Sigmundsson. Lagið er samið við ljóð Rutar Gunnarsdóttur sem er fyrrum kórkona Kvennakórs Suðurnesja en hún lést árið 2006 og tengist textinn þema tónleikanna.

Landsmót íslenskra kvennakóra er tónlistarveisla sem enginn má missa af. Miðasala á báða tónleika mótsins er á tix.is.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar