LHG
LHG

Íþróttir

Reynismenn stigalausir frá Sauðárkróki
Sunnudagur 31. maí 2026 kl. 23:26

Reynismenn stigalausir frá Sauðárkróki

Tindastóll tryggði sér dýrmæt þrjú stig þegar liðið fékk Reyni S. í heimsókn á Sauðárkróksvöll í dag, í 5. umferð 3. deildar karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna eftir dramatískar lokamínútur.

Stólarnir mættu ákveðnir til leiks og uppskáru fyrsta markið á 35. mínútu þegar Ariel Reinero kom boltanum í netið og tryggði heimamönnum forystu í hálfleik.

Sandgerðingar mættu hins vegar öflugir inn í síðari hálfleikinn og þurftu aðeins fimm mínútur til að jafna metin. Það var Sigurður Orri Ingimarsson sem skoraði fyrir Reyni á 50. mínútu og hleypti mikilli spennu í leikinn.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þegar allt stefndi í jafntefli á Króknum mætti Benjamín Jóhannes Gunnlaugsson og skoraði sigurmark Tindastóls á 85. mínútu við mikinn fögnuð heimamanna, og þar við sat.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar