LHG
LHG

Íþróttir

Jafntefli í Vogunum eftir fjörugan fyrri hálfleik
Sunnudagur 31. maí 2026 kl. 23:25

Jafntefli í Vogunum eftir fjörugan fyrri hálfleik

Þróttur Vogum og Kormákur/Hvöt skiptu með sér stigunum þegar liðin mættust á Vogaídýfuvelli í dag, í 5. umferð 2. deildar karla. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem bæði mörkin litu dagsins ljós fyrir hlé.

Gestirnir að norðan mættu dýrvitlausir til leiks og þurftu aðeins sjö mínútur til að opna markareikninginn. Það var Pere Belmonte sem kom Kormáki/Hvöt yfir með snemmbúnu marki.

Heimamenn í Þrótti létu það ekki á sig fá og sóttu grimmt það sem eftir lifði hálfleiksins. Uppskeran kom loksins á 42. mínútu þegar Eiður Jack Erlingsson jafnaði metin í 1-1.

Hvorugu liðinu tókst að knýja fram sigurmark í síðari hálfleik og lokatölur því 1-1 í baráttuleik í Vogunum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar