Mannlíf

Kristín Júlla hlaut Edduverðlaun
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 4. júní 2026 kl. 06:59

Kristín Júlla hlaut Edduverðlaun

Suðurnesjakonan Kristín Júlla Kristjáns var á meðal þeirra sem fögnuðu sigri á Edduverðlaunahátíðinni sl. föstudagskvöld. Hún hlaut verðlaun fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Felix og Klöru.

Kristín Júlla vann verðlaunin ásamt samstarfsfólki sínu, þeim Ástu Hafþórsdóttur og Thomas Foldberg, en þau sáu um gervi, hár og förðun í þáttunum sem Ragnar Bragason leikstýrði.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Ójá, ég vann Eddu“

Kristín Júlla hóf fagnaðarerindið á samfélagsmiðlum sínum með einföldum en kraftmiklum orðum þar sem hún samgladdist samstarfsfólki sínu:

„Ójá ég vann Eddu á föstudaginn ásamt Ástu Hafþórs og Thomas Foldberg. Við unnum fyrir Felix og Klöru, til hamingju allir tilnefndir og allir edduhafar.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar