K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Mannlíf

Ástríður dúx á vorönn
Fimmtudagur 4. júní 2026 kl. 06:35

Ástríður dúx á vorönn

Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir var dúx á vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja er brautskráningin var sú fjölmennasta í sögu skólans en 168 nemendur útskrifuðust. Kristján Ásmundsson skólameistari stýrði sinni síðustu útskrift en hann lætur af störfum í sumar eftir fjörutíu ára starf, þar af sem skólameistari FS síðustu fjórtán ár.

Af þessum 168 útskriftarnemendum voru 127 stúdentar, 19 luku verknámi, 19 luku námi af starfsnámsbrautum, 8 af starfsbrautum og 1 iðnmeistari. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Konur voru 100 en karlar 68. Alls komu 116 úr Reykjanesbæ, 23 úr Suðurnesjabæ, 5 eru með lögheimili úr Grindavík, 1 úr Vogum og 23 komu annars staðar af landinu. Þess má geta að með tilkomu dreifnáms í einka- og styrktarþjálfun hefur þeim útskriftarnemendum sem ekki búa á Suðurnesjum fjölgað verulega.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Dagskráin fór fram á sal skólans og var með hefðbundnu sniði en það var Elvar Smári Sævarsson kennari og umsjónarmaður dreifnáms sem kynnti hana. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Telma Rut Eiríksdóttir brautarstjóri starfsbrautar flutti skriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni léku Sara Cvjetkovic á píanó og Arnar Geir Halldórsson á selló en þau eru bæði stúdentar frá FS og nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 150.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn af stúdents- og verknámsbrautum við útskrift og hlaut Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir styrkinn. Ástríður Auðbjörg hlaut einnig 50.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af raunvísindabraut með 9,64 í meðaleinkunn.

Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það var Elínborg Ingvarsdóttir tómstundafulltrúi skólans sem afhenti verðlaunin. Það voru þau Friðrik Gunnarsson og Ísey Rún Björnsdóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf.

Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þau Amelía Sara Kamilsdóttir, Hafþór Logi Sigurðsson, Lára Margrét Hermannsdóttir og Salka Eik Nökkvadóttir fengu 40.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku. Þá fékk Guðjón Þorgils Kristjánsson 80.000 kr. styrk fyrir sigur í Söngkeppni framhaldsskólanna.

Við athöfnina veitti skólameistari Atla Þorsteinssyni, Írisi Jónsdóttur og Kolbrúnu Marelsdóttur gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þau hafa öll starfað við skólann í 25 ár. Það er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu við þessi tímamót.

Við lok athafnarinnar voru kennararnir Ólöf Hildur Egilsdóttir, Bragi Einarsson, Jón Gunnar Schram og John Richard Middleton kvödd en þau eru öll að fara á eftirlaun eftir að hafa starfað við skólann um árabil.

Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari afhenti síðan Kristjáni Ásmundssyni skólameistara gjöf frá skólanum en hann lætur nú af störfum eftir að hafa starfað við skólann í 40 ár sem kennari, aðstoðarskólameistari og skólameistari undanfarin 14 ár.

Nánar um verðlaunahafa á heimasíðu FS.

Ljósmyndir tók Oddgeir Karlsson.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar