Fréttir

Nýr meirihluti myndaður í Sveitarfélaginu Vogum
Sunnudagur 7. júní 2026 kl. 18:19

Nýr meirihluti myndaður í Sveitarfélaginu Vogum

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi listi Strandar og Voga  og L-listi Listi fólksins hafa myndað nýjan meirihluta í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans, verður bæjarstjóri sveitarfélagsins, Birgir Örn Ólafsson verður formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson forseti bæjarstjórnar.

Nýr meirihluti mun byggja á þeim sterka grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því góða samstarfi sem tókst um mikilvæg verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verður horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa.

Samstarfið byggir á málefnasamningi sem miðar að því að styrkja sveitarfélagið til framtíðar, efla þjónustu í heimabyggð, styrkja innviði, styðja við fjölskyldur og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulíf og félagsstarf í vaxandi og öflugu samfélagi.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar sýndu okkur í kosningunum og göngum auðmjúk en ákveðin til verka. Framundan eru stór verkefni en líka mikil tækifæri. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á góða samvinnu, skýra forgangsröðun, gott samtal við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, verðandi bæjarstjóri.

Málefnasamningur meirihlutans verður kynntur nánar á næstu dögum, segir í tilkynningu frá nýja meirihlutanum.

Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans
Birgir Örn Ólafsson, oddviti E-listans
Kristinn Björgvinsson, oddviti L-listans 

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar