Magnús Stefánsson lætur af störfum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar eftir tæp 14 ár
Í vikunni lauk Magnús Stefánsson starfstíma sínum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Magnús á að baki glæsilegan feril í forystu sveitarfélagsins, en hann hóf störf sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs í júlí árið 2012.
Þegar Sandgerðisbær og Garður sameinuðust árið 2018 tók Magnús við keflinu og var ráðinn bæjarstjóri hins nýja sveitarfélags, Suðurnesjabæjar. Hann hefur því gegnt starfi bæjarstjóra á svæðinu í tæp 14 ár.
Mikil uppbygging og íbúafjölgun
Á starfstíma Magnúsar hafa orðið miklar breytingar og ör þróun á samfélaginu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á innviðum og þjónustu sveitarfélagsins, samhliða því sem íbúum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Þá hefur verið lagður traustur grunnur að enn frekari uppbyggingu og áframhaldandi íbúafjölgun í nánustu framtíð.
Kveðja frá nýrri bæjarstjórn
Á sínum fyrsta fundi þann 3. júní síðastliðinn bókaði nýkjörin bæjarstjórn Suðurnesjabæjar sérstaka kveðju til Magnúsar:
„Að lokum vill nýkjörin bæjarstjórn þakka fráfarandi bæjarstjóra, Magnúsi Stefánssyni, fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.“









