Fréttir

 Þrjár Suðurnesjakonur í forystu stærstu fræðslusjóða landsins
F.v.: Sólveig Ólöf Magnúsdóttir, Selma Kristjánsdóttir og Lísbet Einarsdóttir.
Laugardagur 6. júní 2026 kl. 06:28

Þrjár Suðurnesjakonur í forystu stærstu fræðslusjóða landsins

Það vekur verðskuldaða athygli að þrjár konur, allar uppaldar á Suðurnesjum, skuli í dag leiða þrjá af stærstu fræðslusjóðum landsins. Þær Lísbet Einarsdóttir frá Njarðvík, framkvæmdastjóri Starfsafls, Solveig Ólöf Magnúsdóttir úr Garðinum, framkvæmdastjóri Landsmenntar og Selma Kristjánsdóttir frá Keflavík, framkvæmdastjóri Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks, gegna hver um sig lykilhlutverki í uppbyggingu hæfni á íslenskum vinnumarkaði.

Allar luku þær stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þeim góða skóla, en þekktust ekki á skólaárunum. Það var fyrst þegar þær tóku við stjórnartaumum í fræðslusjóðunum að leiðir þeirra lágu saman. Í dag starfa Lísbet, Solveig og Selma náið saman og eru í reglulegum samskiptum um málefni starfsmenntunar, sameiginleg verkefni og þróun vinnumarkaðarins.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Fræðslusjóðirnir eru samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaga og byggja á kjarasamningsbundnu framlagi atvinnurekenda. Hlutverk þeirra er að efla hæfni, auka aðgengi að námi og styðja við einstaklinga aog fyrirtæki. Á síðasta ári fögnuðu sjóðirnir 25 ára afmæli svo þeir búa sameiginlega að mikilli og góðri reynslu á starfsmenntun í atvinnulífinu. 

Þrátt fyrir að sjóðirnir starfi á ólíkum vettvangi og með mismunandi þjónustufyrirkomulagi er sýn og nálgun þeirra Lísbetar, Sólveigar og Selmu sú sama. Áherslan er á stefnumiðaða fræðslu sem tengist beint framtíðarsýn, rekstrarlegum markmiðum og raunverulegum hæfniþörfum. „Markmiðið er að starfsmenntastyrkirnir sem sjóðirnir veita nýtist sem markviss fjárfesting í mannauði hvort sem um er að ræða vegna náms til réttinda, tungumálanáms, stafrænnar þróunar, tæknibreytinga, leiðtogahæfni, gæðastjórnunar eða sérhæfðrar fagþekkingar. Starfsþróun er leiðarstefið,“ segja þær.

Sameiginleg áhersla þeirra er að fræðsla sé ekki tilviljanakennd aðgerð heldur hluti af heildstæðri stefnu fyrirtækja og markvissri starfsþróun einstaklinga. Þannig verði hún raunverulegt afl til umbreytinga og aukinnar samkeppnishæfni. 

Samanlagt greiddu sjóðirnir þrír um tvo milljarða króna í starfsmenntastyrki á síðasta ári. Þar að baki eru þúsundir einstaklinga og hundruð fyrirtækja sem hafa nýtt sér stuðninginn til að byggja upp þekkingu og færni.

Aðspurðar um samstarfið og sýnina á framtíðina segja þær Lísbet, Solveig og Selma:

„Við lítum á starfsmenntun sem eina mikilvægustu fjárfestingu samfélagsins. Með nánu samstarfi og samræmdri sýn tryggjum við að fjármunirnir nýtist þar sem þeir hafa mest áhrif fyrir fólk, fyrirtæki og atvinnulífið í heild sinni.”

Við hvetjum öll fyrirtæki á almenna markaðnum til að kynna sér reglur sjóðanna og hvaða möguleikar eru fyrir hendi.  Það er nefnilega þannig að réttur stofnast með greiðslu launatengdra gjalda. Ef fyrirtæki er með starfsfólk í hlutaðeigandi stéttarfélögum þá á það rétt á allt að 4 milljónum króna í starfstengdan styrk á ári.  Gæti ekki verið einfaldara. Mörg fyrirtæki á Suðurnesjum nýta rétt sinn í sjóðunum á hverju ári,  til allskonar fræðslu, t.d. Langbest, Hótel Keflavík, Airport Associates, Icelandair, Skólamatur, Algalíf, Bus4u og fleiri. Við erum alltaf til í að svara öllum spurningum og leiðbeina eftir bestu getu og það er alltaf velkomið að hafa samband,“ segja þær.

Sótt er um styrk til allra sjóða með einni aðgerð á www.attin.is sem er sameiginleg vefgátt sjóðanna fyrir fyrirtæki.

Þótt starfsstöðvar þeirra séu í dag á höfuðborgarsvæðinu liggja ræturnar áfram suður með sjó og þeim er hlýtt til þeirra fyrirtækja sem þar starfa og vilja að sjálfsögðuað öll fyrirtæki þar nýti sinn rétt.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar