Frumkvöðlar á Suðurnesjum hvattir til að grípa tækifærið – opið fyrir umsóknir í Startup Landið
Ert þú með hugmynd sem gæti orðið að fyrirtæki? Eða rekur þú fyrirtæki sem vill þróa nýjar vörur, þjónustu eða lausnir? Þá gæti Startup Landið verið næsta skref.
Nú er opið fyrir umsóknir í Startup Landið, nýsköpunar- og viðskiptahraðal sem er sérstaklega ætlaður frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðinni. Markmið verkefnisins er að hjálpa þátttakendum að þróa hugmyndir sínar áfram, byggja upp öflugt tengslanet og fá aðgang að sérfræðiráðgjöf sem getur skipt sköpum á fyrstu stigum vaxtarferlisins.
Startup Landið er skipulagt í samstarfi landshlutasamtaka um allt land, þar á meðal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS), og byggir á þeirri sannfæringu að öflug nýsköpun geti sprottið hvar sem er á landinu. Verkefnið er að mestu leyti rafrænt og því aðgengilegt þátttakendum óháð búsetu.
Þátttakendur fá meðal annars:
- Aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum og sérfræðingum.
- Vinnustofur og fræðslu um rekstur, markaðsmál og fjármögnun.
- Tækifæri til að byggja upp tengslanet frumkvöðla, fjárfesta og samstarfsaðila.
- Stuðning við að þróa hugmyndir frá fyrstu skrefum yfir í raunhæf viðskiptatækifæri.
Á Suðurnesjum býr mikill kraftur, þekking og reynsla. Svæðið hefur á undanförnum árum sýnt að hér eru kjöraðstæður fyrir nýsköpun og atvinnusköpun. Þess vegna hvetur SSS alla þá sem ganga með hugmynd í maganum – hvort sem hún tengist ferðaþjónustu, tækni, matvælaframleiðslu, skapandi greinum, sjálfbærni eða öðrum sviðum – til að kynna sér verkefnið og sækja um.
„Góð hugmynd verður ekki að veruleika nema einhver taki fyrsta skrefið. Startup Landið er einstakt tækifæri fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni til að fá stuðning, þekkingu og tengsl sem geta flýtt fyrir framgangi verkefna og skapað verðmæti fyrir samfélagið, segir Dagný Maggýjar verkefnastjóri Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja en hægt er að senda fyrirspurnir á [email protected].
Umsóknarfrestur er til 1. september 2026 og allar upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna á www.startuplandid.is.
Kannski er næsta stóra nýsköpunarverkefni Íslands að verða til á Suðurnesjum. Nú er rétti tíminn til að láta reyna á hugmyndina.










