Guðlaug M. Pálsdóttir skipuð skólameistari Fjölbraut
Guðlaug M. Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Guðlaug býr yfir 30 ára reynslu hjá skólanum þar sem hún hefur gegnt fjölbreyttum störfum og ábyrgðarhlutverkum, meðal annars sem kennari, sviðsstjóri, áfangastjóri, aðstoðarskólameistari og settur skólameistari.
Guðlaug er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun menntastofnana auk kennslufræði til kennsluréttinda frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í líffræði við Háskóla Íslands.
Alls sóttu tveir um embættið.









