Lögreglan skoðaði myndavélarnar: Strákarnir fengu ekki afgreiðslu í Vínbúðinni
Lögreglan hefur nú skoðað atvik þar sem 16 ára drengir sögðust hafa keypt sterkt áfengi í Vínbúðinni í Reykjanesbæ. Niðurstaða rannsóknarinnar er afgerandi: Strákarnir fengu enga afgreiðslu í versluninni.
Í morgun greindu Víkurfréttir frá heitum umræðum á samfélagsmiðlum eftir að móðir drengs steig fram. Hún fullyrti að syni sínum og félögum hans hefði verið selt áfengi sem leiddi til ofurölvunar og afskipta lögreglu. Málið vakti hörð viðbrögð og efasemdir bæjarbúa, sem mörgum þótti sagan ótrúleg enda eftirlit í versluninni jafnan mjög strangt.
Málið var tekið til rannsóknar og voru upptökur úr öryggismyndavélum Vínbúðarinnar meðal annars skoðaðar.
Í skriflegu svari til Víkurfrétta staðfestir Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri Vínbúðanna, að málið sé upplýst.
„Til upplýsinga þá skoðaði lögreglan málið í gær og staðfest var að þessir aðilar fengu ekki afgreiðslu í Vínbúðinni,“ segir Þorgerður Kristín.
Með þessu er staðfest það sem marga bæjarbúa grunaði strax í upphafi; að ungmennin hafi ekki sagt satt til um uppruna áfengisins.









