Lækkaðar álögur, nýr gervigrasvöllur og hámarksverð á leikskólum í nýjum málefnasamningi
Fulltrúar Samfylkingarinnar og óháðra (S-lista) og Sjálfstæðisflokksins og óháðra (D-lista) hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samstarf í meirihluta bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Í nýjum málefnasamningi flokkanna er lögð rík áhersla á að lækka álögur á íbúa, bæta lífsgæði barnafólks, fatlaðra og eldri borgara, og vinna áfram að sameiningu byggðakjarnanna tveggja, Garðs og Sandgerðis, sem sameinuðust árið 2018.
Hér eru helstu áhersluatriðin úr nýjum málefnasamningi meirihlutans:
Stuðningur við barnafólk og skóla
Hámarksverð á leikskólum: Tryggt verður að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir fulla leikskólavistun, auk þess sem tekinn verður upp 100% systkinaafsláttur.
Skólauppbygging: Hafnar verða framkvæmdir við stækkun Sandgerðisskóla og undirbúningur hafinn að byggingu nýs leikskóla í Garði. Þá verða niðurgreiðslur til dagforeldra endurskoðaðar.
Íþróttir og heilsuefling
Gervigrasvöllur og opnunartímar: Ákvörðun verður tekin sem allra fyrst um uppsetningu á heilum gervigrasvelli í sveitarfélaginu. Einnig á að rýmka opnunartíma sundlauga svo almenningur geti nýtt íþróttamannvirkin betur.
Efling íþróttastarfs: Frístundastyrkjakerfið verður endurskoðað og fagfólk ráðið til að styðja við barna- og unglingastarf íþróttafélaganna.
Innviðir, skipulag og atvinnumál
Tenging byggðakjarnanna: Mótun heildstæðrar sýnar á svæðið á milli Garðs og Sandgerðis verður sett í forgang, með það að leiðarljósi að nýta landið undir íbúabyggð, atvinnu, íþróttir og útivist.
Samgöngur og stígar: Þrýst verður á að Garðskagavegur verði endurbættur sem fyrst. Þá verður kraftur settur í gatna- og stígagerð, bættar almenningssamgöngur milli kjarnanna og hafin vinna við útivistarsvæðið Gryfjuna í Sandgerði.
Atvinnulíf og hafnir: Atvinnustefna verður mótuð til að hámarka tækifærin í K64 (Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar) og Hringrásariðngarðinum. Einnig á að auka samkeppnishæfni Sandgerðishafnar með nýrri þjónustustefnu og endurskoðuðu skipulagi.
Opin stjórnsýsla og ferðaþjónusta
Gagnsæi og opið bókhald: Meirihlutinn ætlar að innleiða opið bókhald og gera fundargögn og fundargerðir nefnda aðgengilegri fyrir íbúa, auk þess sem fjölga á íbúafundum. Eins og þegar hefur verið tilkynnt verður staða bæjarstjóra auglýst laus til umsóknar.
Garðskagi og sögulegar minjar: Garðskagi verður markaðssettur sem lykiláfangastaður fyrir ferðamenn og hafið verður átak í markaðssetningu á Suðurnesjabæ í heild. Einnig verður hafinn undirbúningur að endurgerð Bæjarskersréttar.
Að lokum lýsa fulltrúar S- og D-lista yfir vilja til að eiga gott samstarf við alla bæjarfulltrúa í minnihlutanum og tryggja gott upplýsingaflæði íbúum sveitarfélagsins til heilla.









