Kvennakór
Kvennakór

Fréttir

Verndum kríuna okkar í Innri-Njarðvík
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
Miðvikudagur 10. júní 2026 kl. 23:12

Verndum kríuna okkar í Innri-Njarðvík

Íbúar í Reykjanesbæ vilja koma mikilvægum og áríðandi skilaboðum á framfæri til samfélagsins varðandi verndun lífríkisins í nágrenni okkar.

Þau Víðir og Rósa, sem búa í einungis 50 metra fjarlægð frá kríuvarpinu við Stekkjargötu í Innri-Njarðvík, senda áskorun til íbúa og hvetja fólk til fyllstu varkárni.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þetta kríuvarp er eitt af þeim síðustu sem eftir eru hér á Suðurnesjum. Náttúran sjálf hefur þegar fækkað um heil 80% í þessum viðkvæma stofni og því skiptir öllu máli að við mannfólkið séum ekki að eyðileggja það litla sem eftir er.

Beint er tilmælum til foreldra að brýna fyrir börnum sínum, sem og öðrum vegfarendum sem ekki hafa vit á aðstæðum, að fara EKKI inn í kríuvarpið.

Sýnum ábyrgð, njótum náttúrunnar úr fjarlægð og verndum þetta dásamlega lífríki sem íbúar á svæðinu elska og vilja standa vörð um.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar