K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Fréttir

Grindvíkingar blása til mótmæla á Austurvelli á morgun
Fimmtudagur 11. júní 2026 kl. 19:42

Grindvíkingar blása til mótmæla á Austurvelli á morgun

Mótmæla 12 daga reglunni hjá Þórkötlu

Grindvíkingar og stuðningsfólk þeirra munu koma saman til friðsælla mótmæla á Austurvelli, fyrir framan Alþingishúsið, á morgun, föstudaginn 12. júní klukkan 12:00. Tilgangurinn er að knýja á um svör og vekja athygli á áframhaldandi óvissu og ákvörðunum stjórnvalda sem íbúar telja órökréttar.

Mótmælin eru skipulögð í kjölfar vaxandi óánægju með húsnæðismálin, en dropinn sem fyllti mælinn hjá mörgum er nýleg ákvörðun varðandi afnot af húsum sem seld voru fasteignafélaginu Þórkötlu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Samkvæmt nýjum reglum verða afnot fyrri eigenda takmörkuð við að hámarki 12 daga á mánuði frá og með 31. ágúst næstkomandi. Á sama tíma gilda aðrar reglur um þá íbúa sem leigja hús sín í gegnum leigufélagið Bríeti, en þeir mega dvelja í sínum húsum alla daga mánaðarins. Þessa mismunun og takmörkun vilja íbúar ekki sætta sig við.

Vilja fá að segja sína sögu

Að sögn skipuleggjenda er stefnt að friðsælum mótmælum þar sem fólk vill fyrst og fremst fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og segja sögu sína eftir erfiða mánuði.

Búist er við að fjölmargir íbúar og fyrirtækjaeigendur úr Grindavík muni fjölmenna á Austurvöll á morgun til að sýna samstöðu.

Mótmælin ríma sterkt við nýlegan pistil bæjarstjórnar Grindavíkur þar sem ríkisvaldið var sakað um að „standa á bremsunni“ og sýna viljaleysi þegar kemur að lausnum og framtíðarsýn fyrir samfélagið.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar