Ólafur og Þorsteinn heiðraðir á Bessastöðum
Forseti Íslands sæmdi í dag 14 einstaklinga heiðursmerki fálkaorðunnar. Tveir þessara einsaklinga eru frá Suðurnesjum. Ólafur Ólafsson fyrirliði og körfuboltaleikmaður og Þorsteinn Eggertsson textahöfundur.
Forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þau sem hluti orðu að þessu sinni eru:
Andri Snær Magnason, rithöfundur, fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
Anna Björnsdóttir, kórstjóri, fyrir störf að mennta-, menningar- og félagsmálum í heimabyggð.
Ásdís Thoroddsen, leikstjóri, fyrir framlag til miðlunar á íslenskri menningararfleifð.
Ásgeir Haraldsson, barnalæknir og prófessor emeritus, fyrir fjölþætt störf á sviði barnalækninga og ónæmisfræða.
Hákon Ingvi Hansson, dýralæknir, fyrir framlag til atvinnumála og samfélagsmála í heimabyggð.
Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
Hreinn Valdimarsson, hljóðmeistari, fyrir framlag til hljóðvinnslu og varðveislu hljóðminja.
Karólína Elísabetardóttir, bóndi, fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.
Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari og fornfræðingur, fyrir framlag í þágu menntamála og klassískrar menntunar.
Miyako Þórðarson, prestur, fyrir störf í þágu heyrnarlausra.
Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur, fyrir frumkvöðlastarf í rannsóknum á íslenskri náttúru og miðlun þeirra.
Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuboltaleikmaður, fyrir þjónustu við heimabyggð á krefjandi tímum.
Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins - íslensk strandmenning, fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
Þorsteinn Eggertsson textahöfundur, fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.
Mynd: Forseti ásamt fálkaorðuhöfunum á Bessastöðum. Mynd af vef forsetaembættisins.









