K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Fréttir

Ný bæjarstjórn komin saman til fyrsta fundar
Nýkjörin bæjarstjórn; f.v. Kristinn Björgvinsson, Birgir Örn Ólafssonar, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Gunnar J. Helgason, Björg Ásta Þórðardóttir, Hulda Birna Helgadóttir Blöndal og Guðmann Rúnar Lúðvíksson. Mynd: vogar.is
Þriðjudagur 16. júní 2026 kl. 10:23

Ný bæjarstjórn komin saman til fyrsta fundar

Nýkjörin bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til síns fyrsta fundar fimmtudaginn 11. júní, í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í síðasta mánuði. Á fundinum var nýr meirihluti formlega kynntur og gengið var frá helstu embættisverkum fyrir komandi kjörtímabil.

Nýja bæjarstjórnin er skipuð sjö fulltrúum. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra er með þrjá fulltrúa, A-listi Fyrir samfélagið tvo, E-listi Strandar og Voga einn og L-listi Lista fólksins einn fulltrúa.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Þriggja flokka meirihluti og ný liðskipan

Fyrir liggur málefnasamningur á milli D-lista, E-lista og L-lista sem munu mynda meirihluta á kjörtímabilinu 2026–2030. Í yfirlýsingunni kemur fram að samstarfið muni byggja á breiðum grunni þar sem áhersla verður lögð á traustan rekstur, öfluga þjónustu, aukið gagnsæi og gott samtal við íbúa sveitarfélagsins.

Á fundinum var Kristinn Björgvinsson kjörinn forseti bæjarstjórnar og Birgir Örn Ólafsson formaður bæjarráðs. Þá var einnig gengið frá skipan í fastanefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins, auk þess sem samþykktur var ráðningarsamningur við Björgu Ástu Þórðardóttur sem nýjan bæjarstjóra Voga fyrir kjörtímabilið.

Fjölgun leikskólaplássa strax á dagskrá

Eitt af fyrstu stóru verkefnum nýja meirihlutans snýr að leikskólamálum í sveitarfélaginu. Á fundinum var tekinn fyrir viðauki við fjárhagsáætlun vegna kaupa og uppsetningar á færanlegum kennslustofum fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli, en það er liður í vinnu við að fjölga leikskólaplássum. Málinu var vísað til frekari vinnslu í bæjarráði.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar