Grindvískar kempur heiðraðar
Meistaraflokkslið kvenna í Grindavík sem vann sér sæti í efstu deild árið 1998 var heiðrað í hálfleik á leik Grindavíkur/Njarðvíkur og Stjörnunnar í Grindavík í gærkvöldi.
Liðið sem var heiðrað í gær vann sæti í efstu deild eftir 23 ára bið en Grindavík hafði þá síðast átt lið í efstu deild kvenna árið 1975.
Afrekið unnu þær í Njarðvík á sínum tíma. Núna er kvennalið Grindavíkur í sameinuðu liði með Njarðvík og sameinaða liðið var að leika sinn fyrsta heimaleik í Grindavík í gærkvöldi. Sá leikur var gegn Stjörnunni í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna þar sem Grindavík/Njarðvík vann glæstan sigur og tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Fram.







