Ásta Júlía og Emma í grænu á næstu leiktíð
Ólíkir leikmenn en miklir karakterar
Landsliðskonan Ásta Júlía Grímsdóttir og Emma Theodórsson hafa samið við Njarðvík og verða í grænu þegar titilvörnin hjá Ljónynjunum okkar hefst næsta haust.
Ásta Júlía er körfuknattleiksunnendum að góðu kunn enda margfaldur meistari og reyndur landsliðsmaður sem skiptir í Njarðvík frá Val. Emma ól manninn í Bandaríkjunum og lauk þaðan nýverið háskólagöngu.
Þá er það ljóst að Sofia Roma og Paulina Hersler munu ekki leika með Njarðvík á næstu leiktíð og viljum við þakka þeim innilega fyrir þeirra framlag til félagsins. Hlutverk Ástu og Emmu verður því að þétta raðirnar í og við teiginn hjá Njarðvíkurliðinu á komandi vertíð.
Ásta Júlía er 25 ára gömul, miðherji/framherji, sem á að baki 17 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur verið lykilleikmaður hjá Val í hart nær áratug. Emma sem er 23 ára gamall framherji lauk námi hjá George Washington háskólanum í Bandaríkjunum og er á leið í sinn fyrsta samning í Bónusdeildinni.
„Það lá ljóst fyrir að við ætluðum okkur að sækja tvo leikmenn með hæð inn í hópinn okkar,“ sagði Einar Árni þjálfari Njarðvíkurliðsins um leið og hann staðfesti að Paulina Hersler og Sofa Roma myndu ekki snúa aftur í Njarðvík á næstu leiktíð.
„Við höfum öfluga bakverði og þegar það var ljóst að Pau og Sofia væru á förum sem og Inga Lea þá fórum við að skoða hvernig við ættum að bregðast við og nöfn Ástu og Emmu voru komin upp á borð snemma í ferlinu þegar horft var til íslenskra leikmanna. Ásta er þekkt stærð í deildinni, frábær í mörgum hlutum og leiðtogi hjá Val. Emma er kannski minna þekkt stærð enda ólst hún upp í Bandaríkjunum en hún á stóra fjölskyldu hér á Íslandi í föðurfólkinu sínu og lék m.a. með U18 og U20 ára landsliðum Íslands. Þannig vissi ég af henni og hafði bara heyrt góða hluti af þeim sem hafa unnið með Emmu og frá leikmönnum sem hafa spilað með henni í yngri landsliðum Íslands,“ sagði Einar en bætti þó við að hér væru samt sem áður ólíkir leikmenn á ferðinni.
„Báðar koma þær með hæð og frákastagetu en eru í raun ólikir leikmenn, báðar eru miklir karakterar og á það leggum við mikla áherslu í okkar hóp svo við þjálfararnir erum afar spenntir að hefja vinnuna með þeim.“







