K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Íþróttir

Almar og Sara hlutu Áslaugar- og Elfarsbikarinn
Fimmtudagur 18. júní 2026 kl. 14:11

Almar og Sara hlutu Áslaugar- og Elfarsbikarinn

Lokahóf yngri flokka körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur fór fram í Ljónagryfjunni fimmtudaginn 4. júní. Sara Björk Logadóttir hlaut Áslaugarbikarinn á hófinu og Almar Orri Jónsson hlaut Elfarsbikarinn.

Þjálfarar í hópunum veittu viðurkenningar en lokahófið var tvískipt, iðkendur í minnibolta 9 ára og yngri fengu viðurkenningarskjöl fyrir sinn dugnað í vetur. Í minnibolta 10 ára og eldri eða flokkum sem leika í Íslandsmóti voru veitt verðlaun fyrir mestu framfarir og mikilvægasta leikmanninn. Hér að neðan má sjá lista verðlaunahafanna.

Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar bauð iðkendum og forráðamönnum þeirra til pylsuveislu í Ljónagryfjunni í boði Skólamatar sem fær kærar þakkir fyrir að styðja við lokahófið.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Iðkendum, forráðamönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum sendum við kærar þakkir fyrir tímabilið og hlökkum til að taka á móti iðkendum í sumaræfingar. Við hvetjum alla iðkendur til að vera dugleg að æfa sig í sumar og hlökkum til að taka á móti ykkur á nýrri leiktíð.

Áslaugarbikarinn 2026

Áslaugarbikarinn í ár hlýtur Sara Björk Logadóttir. Sara Björk er leikmaður meistaraflokks kvenna og 12.flokks kvenna hvar hún er á miðju ári. Sara Björk hefur verið lykilmaður Njarðvíkurliðsins í meistaraflokki síðustu tvö ár og fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir í meistaraflokki á lokahófi félagsins. Sara Björk er frábær alhliða leikmaður sem að hafði stórt hlutverk sérstaklega varnarlega í Njarðvíkurliðinu í vetur. Hún og samherjar hennar í meistaraflokki urðu Meistarar meistaranna í haust er þær sigruðu Hauka á Ásvöllum. Hún varð svo Bikarmeistari með 12.flokki kvenna í febrúar er stelpurnar sigruðu Val í úrslitaleik. Hún varð svo Íslandsmeistari með meistaraflokki á dögunum eftir 3-1 sigur gegn Haukum í úrslitaeinvígi og fylgdi því eftir með því að verða Íslandsmeistari í 12.flokki fjórum dögum síðar eftir úrslitaeinvígi gegn Val sem endaði 2-0. Sara hefur verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands og er hluti af bæði U18 og U20 landsliði kvenna sumarið 2026. Sara Björk æfir gríðarlega vel og hefur alltaf gert – hún er mikil fyrirmynd innan sem utan vallar.

Elfarsbikarinn 2026

Elfarsbikarinn í ár hlýtur Almar Orri Jónsson. En Almar er leikmaður 11., 12. ungmennaflokks og meistaraflokki félagsins. Hann var lykilmaður í öllum yngri flokkunum sem hann spilar með og átti margar stórleiki í vetur með öllum þessum flokkum. Þar má helst nefna þar sem hann skoraði yfir 50 stig með 11.flokki.

Almar steig einnig sín fyrstu skref í meistaraflokki í vetur, hann fékk fyrstu tækifærin sín á vellinum og stóð sig virkilega vel á æfingum með atvinnumönnunum. Almar er líkamlega sterkur og býr yfir miklum sprengikrafti, hann er klárlega tilbúinn að taka næsta skref með meistaraflokki á næsta vetri. Ef hann heldur rétt á spilunum gæti hann náð eins langt og hann vill, hann hefur öll tólin til þess. Almar æfir vel og er mikil fyrirmynd innan sem utan vallar.

Verðlaunahafar 2026 á lokahófi yngri flokka Körfuknattleiksdeildar Njarvíkur


1.deild kvenna – B lið – byggt á 10.-12.- og mfl kvenna
Mestu framfarir: Aníta Rut Helgadóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Kristín Björk Guðjónsdóttir


12.flokkur kvenna
Mestu framfarir:  Margrét Rós Vilhjálmsdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Hulda María Agnarsdóttir


Ungmennaflokkur karla
Mestu framfarir:  Sigurður Magnússon
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Brynjar Kári Gunnarsson


12. flokkur karla
Mestu framfarir:  Ómar Helgi Kárason
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Almar Orri Jónsson


11.flokkur karla
Mestu framfarir: Logi Örn Logason
Mikilvægasti leikmaðurinn: Kristinn Einar Ingvason


10.flokkur karla
Mestu framfarir:  Orri Guðjónsson
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Bergur Sigurþórsson


9.flokkur karla
Mestu framfarir:  Stefán Logi Agnarsson
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Sigurbergur Jóhannsson

10.flokkur kvenna
Mestu framfarir:  Hugrún Kara Unndórsdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir

9.flokkur kvenna
Mestu framfarir:  Emma Ástrós Gunnarsdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Harpa Rós Ívarsdóttir

8.flokkur karla
Mestu framfarir:  Guðni Freyr Geirdal
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Arnór Darri Jónsson

7.flokkur karla
Mestu framfarir:  Jökull Aron Daníelsson
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Alexander Emil Skúlason

8.flokkur kvenna

Mestu framfarir:  María Lilja Brynjarsdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn: Elísa Guðrún Guðnadóttir

7.flokkur kvenna
Mestu framfarir:  María Dís Jónsdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Embla Rut Helgadóttir

Minnibolti 11 ára kvenna
Mestu framfarir:  Salka Karen Bjarnadóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Lillý Anna Wium Guðmundsdóttir

Minnibolti 11 ára karla
Mestu framfarir: Auðunn Örn Hilmarsson
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Sigþór Birmingham

Minnibolti 10 ára karla
Mestu framfarir:  Ólafur Björn Jónsson
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Róbert Daði Unndórsson

Minnibolti 10 ára kvenna
Mestu framfarir:  Erla Alexandersdóttir
Mikilvægasti leikmaðurinn:  Heiða Laufey Sævarsdóttir

Myndir/ JB

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar