Fréttir

Allt gistirými uppselt og búist við miklum fjölda gesta
Fimmtudagur 2. júlí 2026 kl. 11:13

Allt gistirými uppselt og búist við miklum fjölda gesta

Allt skráð gistirými á Reykjanesi er þegar uppselt fyrir 12. ágúst næstkomandi, en þann dag verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Búist er við að Reykjanesskagi verði einn eftirsóttasti áfangastaður landsins fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, enda stendur almyrkvinn þar lengur en víða annars staðar.

Málið var til umræðu á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar þann 25. júní, þar sem Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, fór yfir stöðuna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Hvetja fyrirtæki til að undirbúa sig

Vegna þessa einstaka náttúruviðburðar má búast við gríðarlegri umferð og mikilli ásókn í alla almenna þjónustu á svæðinu, svo sem á veitingastöðum, í verslunum og á bensínstöðvum.

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hvetur fyrirtæki, stofnanir og aðra þjónustuaðila á Reykjanesi til að hefja undirbúning strax og tryggja gott aðgengi. Ráðið leggur ríka áherslu á að rekstraraðilar fari vel yfir opnunartíma og mönnun, bæði á viðburðardeginum sjálfum og dagana í kring, til að mæta þeirri miklu eftirspurn sem fram undan er.

„Almyrkvinn er einstakt tækifæri til að sýna þá gestrisni og öflugu þjónustu sem einkennir Reykjanes og skapa gestum eftirminnilega upplifun,“ segir í bókun ráðsins.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar