Afköst orkuversins í Svartsengi aukin í sumar
Stutt vinnsluhlé nýtt til að auka afköst orkuversins með nýjum og afkastameiri gufuskiljum.
Teymi frá Héðni hafa verið að störfum undanfarna mánuði í skiljustöð HS Orku í Svartsengi þar sem unnið er að því að auka afköst og tryggja hagkvæmni stöðvarinnar. Verið er að taka eldri gufuskiljur úr rekstri og setja nýjar og tæknilega fullkomnari skiljur í þeirra stað. Þetta er umfangsmikið verkefni og mikið liggur á að vinnsla í orkuverinu stöðvist sem allra styst að sögn Einars Vals Skagfjörð Einarssonar, deildarstjóra sölu- og verkefnastýringar hjá Héðni.
„Nýju skiljurnar eru helmingi afkastameiri og um tvöfalt stærri en þær gömlu – þyngdin fer úr sextán tonnum í heil 32 tonn á hverri skilju. Vegna stærðar nýju tækjanna og mikilvægis þess að lágmarka niðritíma orkuversins krefst verkefnið hárnákvæmrar skipulagningar. Nýta þarf fyrir fram ákveðin stopp inni í verinu til að framkvæma skipti og tengingar við núverandi kerfi,“ segir Einar Valur.
Forsmíðaðar tengilagnir
Fyrsta gamla gufuskiljan var tekin út í fyrrasumar. Til þess að verkið gangi sem hraðast fyrir sig á staðnum og þessi 32 tonna búnaður passaði fullkomlega voru allar tengilagnir forsmíðaðar á verkstæði Héðins.
Í sumar hefur verið ráðist í viðamiklar breytingar bæði innan- og utandyra við skiljustöðina í Svartsengi. Gamli lagnastamminn fyrir utan skiljustöðina var tekinn úr notkun og nýr og afkastameiri stammi, sem forsmíðaður var á verkstæði Héðins, tekinn í notkun. Á sama tíma var seinni gamla skiljan tekin úr sambandi og nýja skiljan hífð á svæðið.
„Sá áfangi ber með sér skemmtilega og krefjandi áskorun í uppsetningu því lagnagryfjan undir nýja skiljustæðið er ekki tilbúin. Á meðan Ístak lýkur við jarðvegsvinnuna leysum við málið með því að hýsa þessa 32 tonna skilju tímabundið á sérsmíðuðum búkkum þar til henni verður komið fyrir á endanlegum undirstöðum,“ segir Einar Valur.
Víðtækt samstarf við HS Orku
Verkefnið í skiljustöðinni er liður í víðtæku og góðu samstarfi Héðins og HS Orku á svæðinu. Samhliða þessum stóru skiptum hefur Héðinn sinnt fleiri tengdum verkefnum á vegum orkuversins. Má þar nefna vinnu við dæluhús í Arfadalsvík ásamt mikilvægum verkefnum við dæluhúsið við Bláa lónið, sem meðal annars sér um að viðhalda og stýra réttri vatnshæð í lóninu sjálfu.








