Fréttir

Einstakt samkeppnisforskot hvað varðar hraða og ferskleika
Fimmtudagur 2. júlí 2026 kl. 09:33

Einstakt samkeppnisforskot hvað varðar hraða og ferskleika

„Það blása ferskir vindar í Reykjanesbæ,“ segir Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins leggja ríka áherslu á að einfalda stjórnsýsluna, laða að fjárfestingar og stórauka framboð á sérbýli fyrir fjölskyldur.

Meðal fyrstu stóru ákvarðana nýja meirihlutans er að leggja niður innviðagjöld sveitarfélagsins á íbúðabyggð, iðnaðarbyggð, verslun, þjónustu og athafnasvæði. Vilhjálmur segir þetta gert til að lækka kostnað við uppbyggingu og senda skýr skilaboð um að Reykjanesbær vilji styðja við þá sem vilja byggja upp samfélagið.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kraftur í lóðaúthlutunum og Helguvík í sókn

Undirbúningur er hafinn við útboð fjölda atvinnulóða, en fyrir skömmu var fjöldi lóða boðinn út á Tæknivöllum á Ásbrú. Bæjarstjórinn bindur miklar vonir við Helguvík, sem hann kallar eitt mesta tækifærasvæði landsins.

„Þar er uppbygging þegar hafin og fyrirtæki á sviði bílaleigu, iðnaðar, pípulagna og matvælaframleiðslu hafa þegar fest þar rætur. Jarðarberjarækt er í örum vexti og fyrir liggja áform um frekari uppbyggingu, meðal annars á vegum NATO við olíubirgðastöðina,“ segir Vilhjálmur.

Hann nefnir jafnframt að mikil sóknarfæri séu í gagnaverum, landeldi, hátækni og ferðaþjónustu, þar sem nálægðin við Keflavíkurflugvöll og stórskipahöfnina veiti fyrirtækjum einstakt samkeppnisforskot hvað varðar hraða og ferskleika.

Stórátak í sérbýlum fyrir fjölskyldur

Nýi meirihlutinn ætlar einnig að breyta áherslum í húsnæðismálum. Á næstu árum verður horft til þess að bjóða upp á fjölbreyttara húsnæði með sérstaka áherslu á sérbýli — einbýlishús, raðhús, parhús og tvíbýli. Undirbúningur að stórauknu framboði slíkra lóða er þegar hafinn.

Vilhjálmur bendir á að hagstætt fasteignaverð miðað við höfuðborgarsvæðið, greið umferð og stutt í alla þjónustu geri Reykjanesbæ að kjörnum stað fyrir fjölskyldur.

„Ég hef oft sagt að íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti selt fasteignina sína, flutt í hagstætt sérbýli hér í Reykjanesbæ og notað mismuninn til að ferðast. Þá sakar ekki að hér er styst til útlanda,“ segir bæjarstjórinn að lokum og hvetur fólk og fyrirtæki til að koma og skoða þau tækifæri sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar