Viðskipti

Tímamót í Þjórsárdal - risa framkvæmd Bláa Lónsins
Sigríður Margrét og Daði Már handsala samning í Þjórsárdal.
Fimmtudagur 7. maí 2026 kl. 09:58

Tímamót í Þjórsárdal - risa framkvæmd Bláa Lónsins

Framkvæmdir Bláa Lónsins hf. í Þjórsárdal eru stærsta fjárfestingin í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir en í gær var skrifað undir sérleyfis- og lóðaleigusamninga milli íslenska ríkisins og Bláa Lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi   í  ferðaþjónustu í Þjórsárdal. Samningurinn er fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem  fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn en dalurinn er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands, segir í tilkynningu frá Bláa Lóninu.

Samningurinn er hluti af metnaðarfullri uppbyggingu sem Bláa Lónið hf. stendur að baki í Þjórsárdal,  verkefnið í heild sinni er stærsta fjárfestingin í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir.  Auk starfseminnar í gestastofunni vinnur félagið að uppbyggingu hágæða hótels í Rauðukömbum, Mountain Retreat og Fjallabaðanna.  

Framkvæmdir eru í fullum gangi og er stefnt að því að opna fyrsta hluta starfseminnar sumarið 2027 og að öll starfsemin verði komin í rekstur vorið 2028. 

Aðalbros
Aðalbros

„Ísland býr yfir mikilli sérstöðu og tækifærin fram á veginn liggja í upplifunar- og vellíðunarferðamennsku, við eigum fullt erindi á heimssviðið um þessar mundir.  Hjá Bláa Lóninu starfar einstakur hópur starfsfólks við hönnun, vísindi og upplifun og þetta uppbyggingarverkefni er gott dæmi um þá hæfni, þá langtímasýn og það hugrekki sem einkennt hefur Bláa Lónið frá stofnun þess. Gestastofan og Fjallaböðin í Þjórsárdal munu til lengri tíma verða einn áhugaverðasti áfangastaðurinn í ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.

„Íslensk ferðaþjónusta er í hópi mikilvægustu útflutningsgreina landsins og skapar tekjur og störf víða um landið. Öflug ferðaþjónusta stuðlar auk þess að fjölbreyttu mannlífi, afþreyingu og þjónustu sem allir geta notið. Það er þess vegna alltaf ánægjulegt þegar einkafjárfestar ráðast í miklar fjárfestingar sem gera Ísland enn áhugaverðara og fjölbreyttara í augum ferðamanna. Uppbyggingin í Þjórsárdal er metnaðarfullt og gott dæmi um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í víðum skilningi á þessu merkilega náttúru og sögusvæði“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar