K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Íþróttir

Heiða Dís með gullverðlaun
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 2. júní 2026 kl. 10:26

Heiða Dís með gullverðlaun

Keflvíkingarnir Viktor Berg Stefánsson og Heiða Dís Helgadóttir náðu góðum árangri á Grand Prix Open í Taekwondo í Búlgaríu um síðustu helgi en það er mót ætlað cadet og junior aldursflokkum (12-17 ára). 

Mótið er í E-6 styrkleikaflokki og er jafnframt úrtökumót fyrir lokamót Grand Prix Open sem er haldið í Bosníu í lok árs. Viktor Berg byrjaði sterkt og vann fyrstu tvo bardagana gegn Ítalíu og Króatíu. Því næst keppti hann við sterkan Búlgara sem er með mjög mikla reynslu og hefur m.a. unnið til verðaluna á Evrópumótinu. Bardaginn var fram og tilbaka þar sem Búlgarinn vann fyrstu lotu en Viktor náði geggjuðu hringsparki í 2. lotu og stal lotunni. Búlgarinn hafði svo betur í 3. lotu og Viktor rétt svo missti af verðlaunum en hefur sýnt og sannað að hann er ótrúlega fær bardagamaður enda nýbúinn að vinna Luxembourg open og Norðurlandamótið.  

Heiða Dís sigraði fyrsta bardaga gegn Ítalíu örugglega og þann næsta gegn Búlgaríu, einnig á mjög öruggan hátt. Heiða vann til gullverðlauna og keppnisrétt á lokamótinu í desember, fyrst allra Íslendinga. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar