Pistlar

Getum við sagt að núna  sé loksins komið sumar?
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
fimmtudaginn 4. júní 2026 kl. 11:00

Getum við sagt að núna sé loksins komið sumar?

Getum við sagt að núna sé loksins komið sumar? Í það minnsta er júnímánuður kominn í gang og hann byrjar með veðurblíðu og fínum hita. Og það þýðir að færabátarnir eða strandveiðibátarnir geta allir og fóru allir á sjóinn.

Maímánuður var býsna góður og eins og vanalega í maí þá grisjast ansi vel úr línubátaflotanum hérna fyrir sunnan og má segja að allir línubátarnir hafi farið í burtu nema Dúddi Gísla GK sem er í Grindavík en hann réri einungis fyrstu dagana í maí og síðan ekkert meira. Alls var Dúddi Gísla GK með 56 tonn í þessum fjórum róðrum og mest 18 tonn í einni löndun.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Hinn báturinn sem er eftir er Margrét GK frá Sandgerði og reyndar þá réri Margrét GK allan maímánuðinn og var með 94 tonn í 9 róðrum og mest 17,5 tonn í einni löndun, býsna gott.

Lítum aðeins á hafnirnar og byrjum í Grindavík. Töluvert var um togaralandanir þar og togararnir sem lönduðu þar flökkuðu líka á hafnir til dæmis í Vestmannaeyjum og Neskaupstað. Vestmannaey VE landaði 445 tonnum í 5 róðrum í Grindavík og mest 100 tonnum í einni löndun. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, var með 324 tonn í 4 löndunum í Grindavík. Vörður ÞH kom aðeins í eitt skipti til Grindavíkur og var þá með fullfermi, 109 tonn, annars landaði Vörður ÞH að mestu í Hafnarfirði. Hinn Gjögurstogarinn, Áskell ÞH, kom líka aðeins í eitt skipti til Grindavíkur með 98 tonn og síðan landaði Áskell ÞH að mestu í Hafnarfirði.

Hulda Björnsdóttir GK var með 616 tonn í 4 og mest 188 tonn, öllu landað í Grindavík.

Stóru línubátarnir, Sighvatur GK var með 412 tonn í 4 og Páll Jónsson GK var með 184 tonn í 2, en hann hóf ekki róðra fyrr en seinnipartinn í maí.

Reyndar er það þannig með stóru línubátana að þegar komið er fram á þennan tíma ársins og fram á sumar eru línubátarnir að mestu að eltast við keilu og löngu, og til dæmis í aflanum hjá Páli Jónssyni GK þá af þessum 184 tonna afla voru 83 tonn af löngu og 41 tonn af keilu.

Hjá Sighvati GK var svipað, en af 412 tonna afla var Sighvatur GK með 121 tonn af löngu og 96 tonn af keilu.

Dragnótaveiðin gekk vel í maí og voru tveir bátar frá Sandgerði með yfir 200 tonna afla í maí, Aðalbjörg RE var með 240 tonn í 17 róðrum og Sigurfari GK var með svipaðan afla eða um 245 tonn í 8 róðrum, en hann var að mestu að veiðum við Suðurströndina, en Aðalbjörg RE var allan maí á veiðum við Hafnarleir og fór líka aðeins inn í Faxaflóann.

Siggi Bjarna GK var með 150 tonn í 11 róðrum, Benni Sæm GK 142 tonn í 15 róðrum og síðan kom Stapafell SH til Sandgerðis núna undir lok maí, en hann hóf veiðar árið 2026 frá Sandgerði en hefur síðan landað í Rifi. Stapafell fór síðan til Skagastrandar og landaði þar meðan hrygningarstoppið var hérna fyrir sunnan og við Snæfellsnes, en ekkert hrygningarstopp var í Húnaflóa og gat því Stapafell SH verið þar á veiðum.

Strandveiðisjómenn frá Suðurnesjunum voru langflestir í Sandgerði en 49 strandveiðibátar lönduðu þar í maí, og einn bátur náði yfir 10 tonna afla í maí, og var það Jóhann Haukur á Hawkernum GK. Hann gerði sér lítið fyrir og fór í 10,12 tonna afla í 12 róðrum og var aflahæsti strandveiðibáturinn á Suðurnesjunum og í 8. sætinu á svæði D, og í 18. sætinu yfir allt landið. Sem er vægast sagt flottur árangur því veðurfarið á þessu svæði í byrjun maí var ekki beint auðvelt fyrir strandveiðisjómennina og það voru frekar fáir bátar frá Suðurnesjunum sem náðu að fara í 12 róðra í maí. Í raun voru aðeins fjórir bátar sem náðu að fara í 12 róðra á Suðurnesjunum, en það voru Ólafur GK frá Grindavík og í Sandgerði, Dímon GK, Séra Árni GK og Hawkerinn GK.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar