Reykjanesbær leitar að nýjum skólastjóra í Stapaskóla
Reykjanesbær hefur auglýst laust til umsóknar starf skólastjóra við Stapaskóla, en leitað er að öflugum og framsæknum leiðtoga til að stýra skólastarfinu. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Stapaskóli er heildstæður leik- og grunnskóli þar sem um 75 leikskólabörn og 450 grunnskólanemendur stunda nám. Helstu einkenni skólans eru sveigjanleiki í kennsluháttum og rýmisnýtingu.
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf sem kennari og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði stjórnunar eða menntavísinda. Þá er gerð krafa um reynslu af skólastjórnun, leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.









